Tímarit Máls og menningar - 01.06.2009, Page 132
D ó m a r u m b æ k u r
132 TMM 2009 · 2
1921, hvort tveggja leikritanna með Johanne Dybwad, virtustu leikkonu
Norðurlanda, í aðalhlutverkunum. Við þetta má bæta, af því að næst leiddi
þessi vinna Lárusar með Gullna hliðið til uppsetningar hans á sjónleiknum Á
flótta í Björgvin, að leikhúsið þar hafði tvívegis tekið íslensk verk til sýninga,
Fjalla-Eyvind haustið 1912 (á undan Þjóðleikhúsinu) og Vér morðingjar 1920,
einnig á undan Þjóðleikhúsinu í Ósló.
Menn þurfa auðvitað ekki að vera sammála öllu í túlkun og greiningu Þor-
valds á ferli Lárusar, enda er það ekki aðalatriðið. Hér er heiðarlega staðið að
verki og einnig viðbúið, eðli málsins samkvæmt, að spurningar og umræður
vakni um einstaka málsþætti. Sumum hefði kannski þótt að meiri tenging
hefði mátt vera milli þess sem Lárus var að vinna á sviðinu og þess sem var að
gerast í veröldinni í kringum hann. Þó að hann væri heils hugar í list sinni, var
langt frá því að hann byggi í fílabeinsturni. Aðalatriðið er auðvitað að hér eru
einum helsta listamanni sinnar kynslóðar á Íslandi gerð verðug skil, eigi síður
en skáldum og myndlistarmönnum sem áður hafa orðið þess heiðurs aðnjót-
andi.
Það er sem sagt fagnaðarefni að þessari bók. Kannski verður hún til að
minna á þörfina á að koma upp viðhlítandi kennslustóli í leikhúsfræðum; þá
gæti hún orðið væntanlegum nemendum fyrirmynd um sams konar rit. Efnin
bíða.
TMM_2_2009.indd 132 5/26/09 10:53:30 AM