Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2011, Page 25

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2011, Page 25
„ O g s y n g u r e n g i n n f u g l“ TMM 2011 · 3 25 æskilegt sé að hafa hemil á útbreiðslu meindýra sé ekki ráðlegt að slíkar aðgerðir séu „eingöngu í höndum efnafræðinga“ og að þær séu efldar og studdar „af hagnaðarvon þeirra, sem framleiða hin kemisku efni“.2 Julian Huxley óttaðist ekki aðeins að í átökunum við náttúruna glataði mannkyn „helmingnum af yrkisefni enskra ljóðskálda“ eins og rithöfundurinn Aldous Huxley, bróðir hans, orðaði það eftir lestur bókar Carsons.3 Julian varar við ýmsum öðrum afleiðingum alls- herjarnotkunar „eyðingarlyfja“, t.d. því að óværan sem leitast er við að útrýma verði ónæm fyrir eitrinu og menn festist í vítahring þar sem eina lausnin virðist vera sú að dreifa stærri skömmtum eða framleiða sterkari eiturefni. Hann taldi að þau: „ætti ekki að nota nema þegar aðrar aðferðir eru ekki tiltækar og þá aðeins undir ströngu eftirliti og með hliðsjón af líffræðilegri allsherjaráætlun“.4 Þetta er í samræmi við niðurstöður Carsons sjálfrar sem varar ítrekað við afleiðingum ofnotk- unar eiturefna: Darwin sjálfur hefði naumast getað fundið betra dæmi um það hvernig nátt- úruvalið fer fram en ónæmismyndunina hjá skordýrunum eins og hún birtist oss. Í hinum upprunalega stofni, er telur dýr, sem ólík eru að byggingu, hegðun og innri gerð, eru það hin „harðgeru“ skordýr, sem standast eituráhrif efnanna. Eitrið drepur aukvisana. Skordýrin, sem lifa, eru þau, sem búa yfir einhverjum meðfæddum eiginleika, sem ver þau tjóni. Þau verða síðan foreldrar nýrrar kyn- slóðar, sem erfir þennan eiginleika frá foreldrunum. Það er því óumflýjanlegt, að úðun með sterkum efnum eykur aðeins vandann, sem henni var ætlað að leysa. Eftir nokkrar kynslóðir er ástandið þannig, að í stað stofns sem telur bæði veiklaða og harðgera einstaklinga er kominn hreinræktaður stofn harðgerra, ónæmra einstaklinga.5 Með þessu er Carson ekki að leggja til að úðun gegn meindýrum verði hætt, heldur að álagið á meindýrastofninn verði alltaf „eins lítið og unnt [sé] að komast af með“, svo að harðgeru skordýrin nái ekki fótfestu á kostnað hinna. Í sumum „tilfellum getur verið skynsamlegra að sætta sig við minniháttartjón fremur en að losna við það um tíma, ef það kostar það, þegar til lengdar lætur, að sjálf vopnin gegn því glatast“ hefur Carson eftir sérfræðingi á sviðinu: „Ráðleggingar til almennings ættu að vera: „Úðið sem allra minnst“ – en ekki „úðið eins og þér getið““.6 Grundvallarniðurstaðan hér er sú að með því að leggja allt kapp á sigur í einstaka orrustu sé hætt við að stríðið sjálft tapist.7
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.