Tímarit Máls og menningar - 01.09.2011, Blaðsíða 80
I n g i b j ö r g S ó l r ú n G í s l a d ó t t i r
80 TMM 2011 · 3
í arabaheiminum hafa afhjúpað holan hljóm í málflutningi þessara
manna sem skipta fólki í „okkur“ og „hina“, þá sem eru með okkur og
hina sem eru á móti. Málflutning sem í senn nærist á og nærir átök og
fjandskap. Margt bendir til að tími þessara manna sé nú að líða undir
lok bæði á Vesturlöndum og í arabaheiminum. Uppreisnirnar eru því
kjörið tækifæri fyrir Vesturlöndin til að endurhugsa stefnu sína gagn-
vart þessum heimshluta.
Þá er ekki hægt að líta framhjá því að lýðræðisbyltingin í Miðaustur-
löndum mun örugglega hafa áhrif á ungt fólk á Vesturlöndum og hefur
raunar þegar gert það. Á Spáni söfnuðust þúsundir ungra kvenna
og karla saman á Puerta del Sol, aðaltorginu í Madrid, og mótmæltu
miklu atvinnuleysi, en það mælist nú um og yfir 30% meðal ungs fólks,
og harkalegum sparnaðaraðgerðum spænskra stjórnvalda í kjölfar
efnahagskreppunnar. Þau hafa búið sér til sérstakt samfélag á torginu
og skipt sér í vinnuhópa þar sem rædd eru þau málefni sem brenna á
spænsku samfélagi. Mikil áhersla hefur verið lögð á að mótmælin séu
friðsamleg og þau einkennast af sama fljótandi og flata skipulaginu og
mótmælin á Tahir-torgi. Á báðum stöðum svífur sami andi yfir vötnum
– óskin um aukið lýðræði og val, meiri ábyrgð og sterkari siðferðisvitund
stjórnmálamanna og meira jafnræði og jöfnuð í samfélaginu. Þessi andi
hefur þegar náð til annarra Evrópuríkja en eftir stendur spurningin
hvernig hann mun móta stjórnmálaumræðuna á komandi misserum og
hver verði áhrifin af þeirri umræðu.
Óeirðirnar í borgum Bretlands eru án efa angi af þessum meiði en
óvíða er misskipting auðs og áhrifa jafn áberandi og þar. Ungt fólk
sem hefur alist upp í frumskógi borganna, við félagslega, menningar-
lega og jafnvel efnalega fátækt, fer um göturnar og eyðileggur allt sem
ber einhvers konar velgengni vitni. Í óeirðunum fær það völd og kemst
á dagskrá stjórnmálamanna og fjölmiðla. Það er svo umhugsunarefni
fyrir Breta – og reyndar Vesturlandabúa – hvernig á því stendur að for-
sprakkarnir virðast ekki hafa neitt augljóst markmið með aðgerðum
sínum annað en að valda tjóni og tilviljun ein ræður hver verður fyrir
barðinu á þeim.
Hvað er framundan?
Í Miðausturlöndum varð ekki samfélagsbylting árið 2011 heldur eru þar
byltingartímar sem enn sér ekki fyrir endann á. Lenin, einn frægasti
byltingarmaður allar tíma, sagði eitthvað á þá leið að það sem einkenni
byltingartíma sé vangeta forystumanna til að stjórna með þeim hætti