Tímarit Máls og menningar - 01.09.2011, Page 27
„ O g s y n g u r e n g i n n f u g l“
TMM 2011 · 3 27
umhverfisverndarumræðan sé tæki í pólitískum hernaði græningja,
en í þeim hópi má finna ýmiss konar vafasama einstaklinga. Hér má
nefna gamla hippa, uppgjafakomma, og fólk „sem hefur horn í síðu
Vesturlanda, hvítra karlmanna, alþjóðlegra viðskipta, stórfyrirtækja eða
kapítalisma“, svo vitnað sé í orð heimspekingsins og frjálshyggjumanns-
ins Atla Harðarsonar.12
Árásir harðlínumanna á vísindin í nafni falskrar efahyggju hafa
verið nákvæmlega kortlagðar og eru hafnar yfir allan vafa. Nægir í
því tilviki að benda á bók Oreskes og Conway Merchants of Doubt, en
þar er þessi áróðurssaga rakin frá áttunda áratugnum fram á okkar
daga og ótal dæmi tilgreind.13 Það er jafnframt til marks um hversu
pólitísk umræðan hefur verið að 92% þeirra bóka sem drógu í efa gildi
umhverfisverndar og gefnar voru út í hinum enskumælandi heimi á
árunum 1972 til 2005, voru tengdar hugveitum og stofnunum yst á
hægri armi stjórnmálanna.14
Atlagan gegn Rachel Carson hefst líklega fyrir alvöru með bók Dixy
Lee Ray og Lou Guzzo Trashing the Planet, en Ray sem var menntaður
líffræðingur er líklega þekktari sem sautjándi ríkisstjóri Washington-
Dauða-salt hf. auglýsir:
„DDT er m–é–é–r gott“.
DTT er gott fyrir ávextina,
gott fyrir nautgripina og
mjólkina, gott fyrir upp-
skeruna og atvinnulífið, og
gott á heimilið. Auglýsing
úr Time magazine 30. júní,
1947.