Tímarit Máls og menningar - 01.09.2012, Page 96
Á g ú s t B o r g þ ó r S v e r r i s s o n
96 TMM 2012 · 2
hlógu og foringinn fleygði handklæðinu í hann með orðunum: „Sjensinn að
þú fáir að sleppa við landafræði!“ Upp frá því féll hann þokkalega í hópinn og
var ekki tekinn fyrir aftur. Stuttu síðar var móðirin hins vegar boðuð á fund
skólastjórans vegna þess að Bragi hafði gefið bekkjarfélaga sínum blóðnasir.
Þetta var tveimur mánuðum eftir að kötturinn Grettir týndist og bekkjar
félaginn sagðist hafa drepið hann. Bragi launaði honum þá gamansemi með
hnefahöggi. Hann var líka látinn í friði í skólanum eftir þetta.
Bragi var í senn viðkvæmur og harðskeyttur. Hann grét oft og mamma
huggaði hann og hughreysti. Óskar grét ekki og þess vegna sá mamma ekki
tilefni til að hughreysta hann. Að kvöldi dagsins sem Bragi hafði ráðist á
skólabróður sinn grét hann í rúminu og mamma kom inn til þeirra til að
sefa hann.
„Hvers vegna kemur Grettir ekki?“ sífraði hann.
„Ég veit það ekki, vinur. Líklega villtist hann. Kannski skilar hann sér
einhvern tíma.“
„Ég vil fá pabba,“ sagði hann þá. Svoleiðis nokkuð hafði ekki verið sagt
áður. Hik kom á mömmu og síðan sagði hún það augljósa:
„Það er ekki hægt, vinur.“
***
Óskar hugsar um gulbröndótta heimilisköttinn í sófanum. Hvers konar líf er
það fyrir kött að eðla sig aldrei, slást ekki og veiða ekki? Allt eru þetta frum
hvatir. Hvers slags köttur er það sem búið er að svipta eðlishvötunum?
Hvers konar líf er það fyrir kött að standa í stöðugum áflogum og vera
vikum saman á vergangi?
Hvers konar líf er það að berja fólk með stálröri?
Hvers konar líf er það að ráða aldrei neinu, geta aldrei farið sínu fram,
þurfa alltaf að vera þægur og spakur eins og geldur fressköttur í sófanum?
***
Fólk furðar sig á því hvað þeir bræður eru ólíkir. Talar stundum eins og það
sé hálft í hvoru að klappa honum á bakið fyrir að hafa ekki leiðst út á sömu
braut og Bragi.
En hversu ólíkir eru þeir þegar allt kemur til alls? Óskar er að vísu laus við
skapofsa og hefur enga þörf fyrir að berja á fólki. Kannski er það samt tilviljun
að hann er betur staddur í lífinu en Bragi. Þegar þau Sigrún kynntust var
drykkja hans orðin stjórnlaus, hann var atvinnulaus, hafði flosnað úr námi
og var að drukkna í skuldum. Sigrún óð inn á hann einn daginn þegar hann
var að fá sér fyrsta og hingað til eina afréttara lífs síns, vodka í Sevenup úr glasi
frá gleðskap kvöldinu áður. Í stað þess að klára úr glasinu fór hann inn á bað
og kastaði upp, lagði sig síðan að ráði gestsins, svaf í margar klukkustundir