Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2013, Page 39

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2013, Page 39
„ E n t i l h v e r s e r a ð d v e l j a v i ð s l í k a d a g d r a u m a ! “ TMM 2013 · 1 39 Michels Foucault (1926–1984) sem fjallaði um hugsunarsögu Vesturlanda og upplýsinguna í frægri bók sinni Orð og hlutir (Les mots et le choses, 1966). Það sem einkennir þekkingu og skynjun upplýsingarmanna, samkvæmt kenningum hans, er mikil greiningarþörf, flokkun og skipulag. Samfellt kerfi hluta er búið til og virkar sem eins konar algild sannindi, hreyfingarlaus og tímalaus, líkt og greypt inn í hugann. Þetta eru vísindi sem gefa sig út fyrir að þekkja sannleikann. Á upplýsingartímanum var „lýsing“ lykil hug tak og forsenda þeirrar þekkingar sem réð skynjun manna á heiminum. Heimurinn og hugsunin voru þá álitin spegla hvort annað hnökralaust í gegnum tungu- málið sem menn töldu að væri algerlega gagnsætt, orð og hlutur samsvöruðu hvort öðru fullkomlega. Heimsmyndin var sett upp í eins konar alfræðitöflu og skipað eftir ákveðnum reglum. Hvorki tungumálið né tilvist manns- ins var vandamál í sjálfu sér (Foucault, 1996). Upplýsingin er því tímabil alfræðinnar miklu, orðabókanna og vísindasafnritanna. Alfræðitaflan byggist á einfaldleika, hún birtir þekkingu í ljósi mismunar og sérkenna. Frægt dæmi um slíka töflu er að finna í verkum sænska grasafræðingsins Carls Linné (1707–1778, Systema Naturae, en það er einfalt og algilt flokk- unar- og stigveldiskerfi fyrir plöntur og dýr. Sveinn Pálsson þekkti verk Linnés og í anda hans skrifaði hann stutta ritgerð eða skrá um flokkun íslenskra plantna. Skráin, sem heitir Flora Efri-Skaulana, er tafla um þær plöntur sem hann safnaði og greindi út frá tilteknum eiginleikum sumarið 1796 í túninu heima á Skála undir Eyjafjöllum (Sveinn Pálsson, 1983). Það hefur ýmislegt verið náttúrufræðingi á Íslandi mótdrægt á þessum tíma, því í lok ritgerðarinnar skrifar Sveinn: „Erfitt er einnig að nafngreina grösin með fullri vissu á túnum hér á landi, því að þau eru slegin áður en grösin blómgast“ (703). Í Ferðabókinni takast á viðhorf náttúrufræðings og bóndasonar, vísinda og hjátrúar. Jón Eyþórsson, einn þýðenda ferðabókar Sveins, segir að Sveinn hafi „hatað hjátrú“ (Jón Eyþórsson, 1983:xxxi). Það viðhorf get ég ekki fundið í Ferðabókinni. Sveinn trúir ekki neinu sem hann getur ekki sjálfur sann- prófað en afstaða hans til hjátrúar er langt frá því að vera ofstækisfull, hún er miklu frekar mild og raun sæisleg. Hann segir til dæmis: „Alþýða manna hér á landi kennir alla (slíka) bráða sjúkdóma fjandanum og illum öndum, líkt og annars staðar er títt, enda vita þeir ekki hinar réttu orsakir sjúkdómanna“ (94). Úr skrifum Sveins má lesa einföld skilaboð, fólk vantar upplýsingu. Sjálfur er hann oft tvístígandi með hvað í náttúrunni megi tengja saman og hvað ekki: „Það er áreiðanlegt, að það veit á hvassviðri, þegar mikil ólæti eru í hrossagauknum á kvöldin og framan af nóttu“ (58) skrifar Sveinn eins og athugull sveitamaður. Sagt er frá skrýtnu dýri, með eitthvað sem líktist sels- haus, sem fór á kaf í á og skaut upp kryppu. Fólk sagði að þetta væri algengt á undan illviðri og þá skrifar Sveinn: „En hversu furðulegar sem þessar sýnir mega virðast, þá er hitt samt ennþá furðulegra, að slík dýr skuli aldrei hafa
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.