Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2013, Blaðsíða 66

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2013, Blaðsíða 66
M i l a n K u n d e r a 66 TMM 2013 · 1 Mann útskýrir að bygging Töfrafjallsins sé tónræn, byggð á stefjum sem unnið er úr eins og gert er í sinfóníu, þau koma aftur, víxlast, ganga í gegnum alla skáldsöguna. Það er rétt, en það verður að taka fram að orðið stef hefur ekki alveg sömu merkinguna hjá Mann og hjá Musil. Í fyrsta lagi eru stefin hjá Mann (tíminn, líkaminn, veikindin, dauðinn, o.s.frv.) unnin áfram fyrir framan bakgrunn sem er ekki með neinum stefjum (lýsingar á stöðum, tíma, siðum, persónum) á svipaðan hátt og stef í sónötu eru ofin inn í tónlist sem er utan við stef, brýr og millikafla. Síðan einkennast stefin hjá honum mjög af margsögu, sem þýðir: Mann notar allt það úr vísindunum – félagsfræði, stjórnmálafræði, læknisfræði, grasafræði, eðlisfræði, efnafræði – sem getur varpað ljósi á þetta eða hitt stefið; rétt eins og hann vildi með þessari útlistun á vísindunum fyrir almenning búa til traustan fræðilegan grunn til að greina stefin; þetta gerist of oft og í köflum sem eru of langir, og er til þess fallið að færa skáldsöguna frá því sem mestu skiptir því að, höfum það hugfast, það sem mestu máli skiptir í skáldsögu er einungis hægt að segja í skáldsögu. Greiningin á stefinu er öðruvísi hjá Musil: í fyrsta lagi er ekkert marg- sögulegt við hana; skáldsagnahöfundurinn þykist ekki vera vísindamaður, læknir, félagsfræðingur eða sagnfræðingur, hann greinir mannlegar kringum- stæður sem ekki eru hluti af einhverri vísindagrein, heldur einfaldlega hluti af lífinu. Þannig skildu Broch og Musil hið sögulega hlutverk skáldsögunnar eftir hið sálfræðilega raunsæi: úr því að evrópsku heimspekinni hefði mis- tekist að hugsa mannslífið, hugsa hið „háspekilega áþreifanlega“ við það, þá kæmi loks til kasta skáldsögunnar, að hasla sér þennan auða völl til fram- búðar sem ekkert gæti leyst hann af á (nokkuð sem tilvistarheimspekin sannaði með því að stefna í þveröfuga átt; því greining á tilverunni getur ekki orðið kerfi; tilveran er ókerfisbundin og Heidegger, sem var mikill ljóðaunn- andi, hafði rangt fyrir sér að veita ekki athygli sögu skáldsögunnar þar sem stærsta fjársjóð viskunnar um tilveruna er að finna). Í öðru lagi, öfugt við Mann, verður allt að stefi (tilvistarspurningum) hjá Musil. Og ef allt verður að stefi hverfur bakgrunnurinn og allt verður í forgrunni rétt eins og í kúbísku málverki. Það er í þessu afnámi bak- grunnsins sem ég sé þá byltingu byggingarinnar sem Musil stóð að. Oft láta stórfelldar breytingar lítið yfir sér. Og hugleiðingarnar eru svo langar, hrynjandi setninganna er svo hæg að Maður án eiginleika virðist vera „hefð- bundinn“ prósi. Enginn umsnúningur á tímaröð. Ekkert innra samtal eins og hjá Joyce. Ekkert verið að leggja af greinarmerkjasetningu. Ekki verið að eyðileggja persónuna eða atburðarásina. Í um það bil tvö þúsund blaðsíður fylgjum við lágstemmdri sögu ungs gáfumanns, Ulrichs, sem á nokkrar ástkonur, hittir nokkra vini, og vinnur hjá samtökum sem eru í senn alvarleg og fáránleg (það er í því sem skáldsagan færir sig svo lítið ber á frá því að vera trúverðug og verður leikur) og hafa það hlutverk að undirbúa hátíðahöld í tilefni af því að keisarinn á afmæli, mikla „friðarhátíð“ sem stendur til að halda (grínsprengja sem smeygt er undir grunnstoðir skáldsögunnar) árið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.