Tímarit Máls og menningar - 01.03.2013, Blaðsíða 118
„ B i s n i s s m a ð u r e ð a æ v i n t ý r a f u g l“
118 TMM 2013 · 1
Þakka bréfið frá þér varðandi skrif í Tímann. Við erum enn fúsir að kaupa
af þér efni í blaðið, og myndum borga þér 1200 krónur fyrir síðu í blaðinu, ef
til kemur, að þú sendir eitthvað.
Kær kveðja,
Indriði G. Þorsteinsson.
Ritstjóri.
Steinar sendir Indriða grein með ýmsum fyrirvörum. Indriði svarar:
Steinar,
Ekkert helvítis múður. Ég birti þessa grein í jólablaðinu. Hún er gagnslaus
undir dulnefni – og verðlaus – en afbragð með þínu gamla góða nafni.
Ég skal líta á próförkina og láta ekki barna þig mikið í henni. Hafðu ekki
áhyggjur. Ég læt senda þér 4000.00 krónur.
Kveðja,
Indriði G. Þorsteinsson.
P.S: Sendu mér ekki meira í bili.
Steinar sendi bréf frá heimaborg sinni Dusseldorf 1970 til Ólivers Steins sem stýrði
Skuggsjá í Hafnarfirði. Hann hefur líklega boðið Óliver skáldsöguna Farðu burt
skuggi, en hann náði ekki svo langt að sýna útgefandanum handritið, sem svaraði
bréfi hans og tilmælum með eftirfarandi orðum:
Hr. rithöfundur
Steinar Sigurjónsson.
– – –
Bestu þakkir fyrir bréfið þitt, dags. 30.9.s.l., og boð þitt á handriti til
útgáfu.
Ég skal játa strax, að áhugi minn fyrir bókum „sem djarfan útgefanda
þarf til að gefa út,“ eins og stendur í bréfi þínu, er ákaflega takmarkaður, sér-
staklega ef mikið er um klám eða klámyrði í bókinni.
Auk þess hafa erfiðleikar við bókaútgáfu almennt, vaxið svo hrikalega hér
heima, einkum síðustu tvö árin, að svona karlar eins og ég vita ekki hvort
þeir lifa árið af eða fara pent og huggulega á hausinn. Þar við bætist að ég hef
þegar að mestu ákveðið þær bækur sem ég hef bolmagn til að gefa út á næsta
ári (1971), enda er mér það nauðsyn vegna þess tíma sem ætla þarf hverju
handriti í setningu, prentun, prófarkalestri og öðru því er að útgáfu lýtur.
Vinsamlegast,
O. Steinn.
Steinar bjó árið 1970 í Dusseldorf ásamt sambýliskonunni Barböru, þegar hann
sendi Ragnari í Smára handritið að skáldsögunni Farðu burt skuggi sem Ragnar gaf
út ári síðar. Handritið barst Ragnari í jólaösinni og hann svaraði samdægurs: