Tímarit Máls og menningar - 01.03.2013, Blaðsíða 83
Vi n n u m m i n n a : S t y t t u m v i n n u d a g i n n
TMM 2013 · 1 83
Hér að framan hafa ýmis rök verið sett fram til að rökstyðja styttri vinnudag.
Ekkert eitt af þessu er meginröksemd. Öll rökin vega álíka þungt.
Það verður að undirstrika að stytting vinnudagsins þarf ekki að hafa
þær afleiðingar sem taldar voru upp að framan. Heimurinn er flókinn og
ýmislegt gæti farið á annan veg (þó að hæpið sé að afleiðingarnar verði
slæmar). Hins vegar er áhættan lítil og það er til mikils að vinna. Það yrði
vitanlega á ábyrgð atvinnurekenda og stéttarfélaga að sjá til þess að stytting
vinnudagsins heppnist vel. Til að það gerist þyrftu þessir aðilar að vinna
saman og nýta sér reynslu Evrópulanda sem hafa reynt þetta. Í heimildaskrá
má finna lesefni sem nota má sem upphafsreit til að finna fleiri heimildir
um þetta.
Varnaglar, efasemdir og framtíðin
Margir spyrja sig vafalaust eftir lesninguna: „Á fólk að halda sömu launum,
þrátt fyrir minni vinnu? Fyrirtækin hafa ekki efni á því.“ Laun hafa
einmitt verið helsta bitbein manna í gegnum tíðina þegar hefur átt að stytta
vinnudaginn. Atvinnurekendur hafa viljað að launin standi í stað í skiptum
fyrir styttri vinnudag, en launafólk hefur auðvitað viljað fá sína vanalegu
launahækkun til viðbótar við skemmri vinnudag.48 Vitanlega ætti að greiða
launafólki í það minnsta sömu laun (þ.e. heildarlaun) eftir styttinguna og
fólk fékk fyrir styttingu – vegna þess að í flestum tilvikum myndi sama
fólkið (innan fyrirtækis) vinna í heild sömu verk og fyrir styttinguna,
en á skemmri tíma. Hafa ber í huga að fólki er ekki greitt fyrir að vera í
vinnunni í svo og svo langan tíma, heldur að inna ýmis verk af hendi á svo
og svo löngum tíma – sem eftir styttingu væri skemmri, en verkefnin yrðu
í heildina (innan fyrirtækja) svipuð að umfangi í flestum tilfellum. Fram-
leiðsla, sala og velta ættu því að haldast svipuð hjá flestum fyrirtækjum.
Og af þessum ástæðum ættu flest fyrirtæki vel að hafa efni á því að greiða
sömu laun eftir styttingu og voru greidd fyrir.49 En ætti að veita venjulega
launahækkun, samhliða styttingunni? Það færi eftir því hversu langt væri
liðið frá síðustu launahækkunum – ef stutt væri frá síðustu launahækkunum
þegar styttingin ætti sér stað, þá væri svarið trúlega nei. En ef lengra væri
liðið, þá væri trúlega full ástæða til, enda líklega öll þau sömu skilyrði fyrir
hendi og þegar launahækkanir eru venjulega veittar. Það er engin ástæða til
að bjóða skemmri vinnudag í stað launhækkunar, ef öll skilyrði launahækk-
unar eru til staðar og stytting vinnudags mun ekki koma niður á fyrirtækj-
unum á neinn veigamikinn hátt. Og svo ætti að vera, líkt og rakið hefur verið
að framan (og síðar).
Annars konar mótmæli yrðu kannski á þessa leið: „Hagkerfið er of við-
kvæmt til að þola breytingar sem þessar, nú nýlega fóru ekki bara nokkrir
bankar á hausinn, heldur næstum því líka Seðlabankinn og sjálfur ríkissjóð-
ur. Hugmyndir um að vinna minna eru galnar, það er allra síst það sem þarf