Tímarit Máls og menningar - 01.03.2013, Page 86
G u ð m u n d u r D . H a r a l d s s o n
86 TMM 2013 · 1
8 Þessi tölfræði er reiknuð út frá gögnum úr gagnagrunni Total Economy Database (The Confe-
rence Board, 2011). Miðað er við árið 2010 og 48 vinnuvikur í útreikningum. Sjá einnig Þorvald
Gylfason (2007). – Í þessari tölfræði er aðeins tekin með hefðbundin launavinna. Önnur störf,
t.d. heimilisstörf, eru ekki talin með.
9 Unnið úr gögnum The Conference Board, 2011. Fyrri aftanmálsgrein um útreikninga gildir um
vinnustundir á viku. Vinnudagar á ári voru reiknaðir þannig að mismun á fjölda vinnustunda
var deilt í átta fyrir öll löndin.
10 Myndin er teiknuð eftir gögnum úr gagnagrunni Total Economy Database, sem The Conference
Board heldur við og sér um (The Conference Board, 2011). Þessi gögn eru talin áreiðanleg, en
nánari fróðleik um þau má finna hjá Þorvaldi Gylfasyni (2007). – Tekið skal fram að þó svo
fjöldi vinnustunda fyrir önnur Norðurlönd sé felldur saman í eitt meðaltal fyrir þau öll, villir
það ekki fyrir: Það er mest unnið hérlendis af þessum löndum og það má líka sjá hjá Þorvaldi
Gylfasyni (2007). Á þessu eru örfáar undantekningar, á árunum í kringum 1980 var unnið álíka
mikið í Finnlandi eins og hér, en þó ekki meira. Svipað gildir um þróuðu Evrópulöndin; fyrir
utan Ítalíu er meira unnið hérlendis en í þeim löndum og svo hefur verið lengi, nema í Austur-
ríki og Frakklandi var unnið meira en hérlendis nokkur ár í kringum1980.
11 Á þessu eru örfáar undantekningar, sjá fyrri aftanmálsgrein.
12 Kolbeinn H. Stefánsson, óútgefið handrit. Upplýsingar þær sem handritið byggist á eru að hluta
til fengnar frá OECD.
13 (Meðalfjöldi vinnustunda á vinnandi mann * atvinnuþátttaka) / 100.
14 Það ber að varast að gera of mikið úr því að umfangið sé meira hér en í S-Kóreu. Munurinn
er lítill og hætt er við að mæliskekkjur komi við sögu. T.d. var atvinnuleysi minna í S-Kóreu
árið 2009. Lítill vafi er hins vegar á að Ísland er á svipuðu reki og S-Kórea varðandi umfang
vinnunnar.
15 Hagstofa Íslands (2011).
16 Hagstofa Íslands (2011).
17 Hagstofa Íslands (2011).
18 Rétt er að geta þess að í kjölfar iðnbyltingarinnar lengdist vinnudagurinn mjög mikið. Sú mynd
sem stundum er dregin upp af miðöldum, að þá hafi tíðkast mikil vinnuharka með löngum
vinnudegi, er ekki rétt að nærri öllu leyti. Sjá nánar í Schor (1991).
19 Schor (1991).
20 Bosch og Lehndorff (2001).
21 Lee, McCann og Messenger (2007), 12, 17.
22 Lee, McCann og Messenger (2007), 12, 17.
23 Bosch og Lehndorff (2001), Schor (1991).
24 The Conference Board (2011).
25 Sjá t.d. The Conference Board (2011), en þar má sjá að framleiðni á hverri unninni klukkustund
hefur aukist mjög milli 1980 og 2008 – eitthvað um 50%. Er þessi framleiðni reiknuð á föstu
gengi og er tekið tillit til kaupmáttar. Hluti af þessu er án efa kominn til vegna aukinnar sjálf-
virkni.
26 Bosch og Lehndorff (2001).
27 Verg landsframleiðsla er mælikvarði á endanlegt virði allrar framleiðslu og allrar þjónustu sem
er veitt á vissu landsvæði á vissu tímabili.
28 Þorvaldur Gylfason (2007). Sjá líka Kolbein H. Stefánsson (2008).
29 Eyþór Ívar Jónsson (2002).
30 Hér getur verið á ferðinni flókið samspil sem hér verður ekki kafað frekar ofan í. – Sjá nánar
um lélegt skipulag í Bosch og Lehndorff (2001).
31 Atvinnurekendur ættu að sjá hag sinn í að framleiðni (fyrirtækjanna í heild) haldist álíka
mikil og áður (til að halda veltu og mögulegum hagnaði fyrirtækjanna svipuðum), en til þess
þarf endurbætt skipulag með styttri vinnudegi. – Talsvert af rannsóknum bendir sterklega til
að samband sé á milli styttingar langs vinnudags og aukinnar framleiðni (þ.e. á vinnustund).
Stytting virðist valda aukinni framleiðni. Slík aukning er talin orsakast af minni þreytu,
bættu vinnuskipulagi, breyttum framleiðsluaðferðum og betri anda á vinnustað. Á þessu eru
vitanlega takmarkanir, en þær eiga varla við um Ísland (sjá Lee, McCann og Messenger (2007),
149–150).