Tímarit Máls og menningar - 01.03.2013, Blaðsíða 110
„ G e s t u r v e s t f i r s k i “
110 TMM 2013 · 1
Tilvísanir
1 Leiðréttar eru hér rangfærslur í ættrakningunni í handskrifuðu greininni í Skinfaxa.
2 „Þáttr af Sigurði ór Köldukinn“ eftir „Svipdagr“ birtist í Skinfaxa (6. ár, 6. tbl.) í apríl 1912.
3 Þórbergur stundaði kvöldnám við lýðskóla Ásgríms Magnússonar í Reykjavík veturinn 1908–
1909.
4 Þórbergur nam við Kennaraskólann í Reykjavík veturinn 1909–1910 eins og segir frá í Ofvit-
anum.
5 Þórbergur vann í vegavinnu hjá Árna Zakaríassyni sumarið 1911.
6 Kvæðið „Á vígvellinum“ er birt í Þórbergur Þórðarson: Ljóri sálar minnar. Úr dagbókum,
bréfum og öðrum óprentuðum ritsmíðum frá árunum 1909–1917. Ritstjóri Helgi M. Sigurðsson.
Reykjavík: Mál og menning 1986, s. 94.
7 Í textanum stendur „Hafbl“ sem að öllum líkindum er stytting fyrir „Hafblik“ sem er titillinn
á ljóðabók Einars Benediktssonar sem kom út árið 1906, en Þórbergur var eins og kunnugt er
mikill unnandi ljóða Einars á þessum tíma.
8 Hér er að öllum líkindum átt við Söguna af Heljarslóðarorustu eftir Benedikt Gröndal sem kom
út árið 1861.
9 Beinakerlingavísur er samheiti fyrir kerknisvísur sem ferðalangar rituðu á miða, stungu inn
í hrosslegg og skildu eftir í vörðum. (Sjá greinina „Beinakerling á Sprengisandi“ eftir Árna
Björnsson í Morgunblaðinu 3. mars 2001.) Ekki er vitað hvaða ungmennafélagi keypti af Þór-
bergi safnið sem þarna er getið um né um afdrif þess síðar. Væri fróðlegt að vita hvort einhver
þekkir þá sögu.
10 Hér er átt við Stefán frá Hvítadal, eins og segir frá í Íslenskum aðli.
11 Hér er átt við þá Þorleif Gunnarsson og Gunnar E. Benediktsson, eins og segir frá í Íslenskum
aðli.
12 Hér er vísað til kvæðabálksins „Stefánsstikki“ sem birtist fyrst á prenti í Hvítum hröfnum 1922
og síðar í Eddu Þórbergs Þórðarsonar 1941. Kvæðið er í 19 erindum ortum undir fornyrðislagi.
13 Iðunn var nafn á ungmennafélagi kvenna í Reykjavík.
14 Hér er vísað til Fyrsta málfundaflokks Ungmennafélags Reykjavíkur en það var félagsskapur
nokkurra ungmennafélaga sem „gaf út“ handskrifað blað sem kallaðist Bragi. Tilgangur mál-
fundaflokksins var að æfa félagsmenn í ræðuhöldum og ritlist.
15 Hér er vísað til Þorleifs Gunnarssonar sem sagt er frá í Íslenskum aðli. Þórbergur skrifaði
lýsingu á Þorleifi í Skinfaxa (6. ár, 17. tbl.) í janúar 1913, undir fyrirsögninni „Lýsing á skuld-
heimtumanninum“ og var greinin undirrituð með dulnefninu Hrómundur Hróaldsson. Hún
birtist síðar í Þórbergur Þórðarson: Ólíkar persónur. Fyrstu ritverk í óbundnu máli 1912–1916.
Reykjavík: Ljóðhús 1976.
16 Hér er átt við Guðmund Jónsson frá Mosdal (1886–1956) sem var einn af forustumönnum
Ungmennafélags Reykjavíkur.
17 Hér er átt við Guðbrand Magnússon (1887–1952) sem var einn af forustumönnum Ungmenna-
félags Reykjavíkur.
18 Hér er átt við Magnús Tómasson (síðar Kjaran, 1890–1962) sem var einn af forustumönnum
Ungmennafélags Reykjavíkur.
19 Kvæðið „Nótt“ birtist fyrst í Skinfaxa (5. ár, 15. tbl.) í desember 1911 en kom fyrst á prent í
Ísafold 29. maí 1912 (en ekki 25. maí eins og rangfært er í Eddu Þórbergs Þórðarsonar). Sagt er
frá kvæðinu í upphafskafla Íslensks aðals.
20 Hér er vísað til greinarinnar „Safn til ævisögu Jóns Norðmanns Dúasonar“ sem birtist í
Skinfaxa (7. ár, 7. tbl.) í maí 1913 og var síðan prentuð í Ólíkum persónum.