Tímarit Máls og menningar - 01.03.2013, Síða 117
„ B i s n i s s m a ð u r e ð a æ v i n t ý r a f u g l“
TMM 2013 · 1 117
Skáldsagan Skipin sigla og ljóðabókin Fellur að komu báðar út hjá Helgafelli 1966.
Þremur árum síðar er Sigurður A. Magnússon orðinn ritstjóri Samvinnunnar og
svarar bréfi Steinars:
Reykjavík 20. nóvember 1969.
Góða kvöldið, Steinar.
Afsakaðu að ég hef ekki komið því í verk að svara bréfum þínum fyrr en
nú, en bæði var ég erlendis í síðasta mánuði og hef haft yfirfullt að gera síðan
heim kom. Nú hef ég loks fengið tóm til að lesa sögur þínar tvær, og mundi
gjarna vilja birta Af sérstöku tilefni, en hængurinn er bara sá, að ég ligg með
sögu eftir þig sem ég var búinn að greiða og ætla að birta á næsta ári, og svo
hefur mér verið uppálagt að borga ekki efni fyrirfram vegna gengdarlauss
taps á Samvinnunni undanfarin tvo ár. Vona ég að þú skiljir þessa aðstöðu
mína. Samvinnan kemur ekki út nema sex sinnum á ári, svo því eru sett
ströng takmörk hve oft er hægt að birta sögur eftir sömu höfunda. Þú verður
sá fyrsti sem fær aðra sögu birta eftir sig, síðan ég tók við ritinu, svo þú mátt
vel við una … Viljirðu hinsvegar heldur að ég birti Af sérstöku tilefni [fremur]
en Myndatöku, þá geri ég það fúslega.
Ég er auðvitað meira en fús til að lesa yfir nýju bókina þína og reyna að
koma henni á framfæri. Ég lofa að vera fordómalaus og gera það sem ég get.
Annars er ég víst orðinn svo illa séður í þessu forstokkaða þjóðfélagi upp
á síðkastið, að guð má vita hvort nokkur tekur mark á mér lengur. Hvað
um það, við skulum reyna. Sendu handritið og ég skal fara með það einsog
sjáaldur augans. Hitt get ég því miður ekki liðsinnt þér með, að fá bókina
prentaða í nokkrum eintökum, því ég hef engin sambönd sem gætu gert það
fært og er svo illa staddur sjálfur með sjö börn á framfæri, að ég á ekki eyri
aflögu.
Ég vona að þú sért búinn að yfirvinna nikótínið og jafna þig eftir þau átök.
Láttu mig vita hvað þú vilt að ég geri við sögurnar tvær, og sendu mér hand-
ritið ef þér hefur ekki snúizt hugur.
Beztu kveðjur til Barböru. Ég sendi henni teikninguna í sérstöku
umslagi.
Kveðjur,
Sigurður A.
Steinar bjó um nokkurra ára skeið ásamt sambýliskonu í þýsku borginni Dussel dorf
og þar bjó hann árið 1969 þegar hann bauð ritstjóra Tímans, Indriða G. Þorsteins-
syni, að skrifa greinar í blað hans. Því mun hafa verið vel tekið. Einhverjar vöflur
virðast þó hafa komið á Steinar vegna greinaskrifanna. Indriði svarar Steinari:
Tíminn 30.okt. 1969.
Steinar Sigurjónsson,
Kirchfeldstrasse 81
Dusseldorf
Deutschland