Tímarit Máls og menningar - 01.09.2015, Page 43
Þ v í m e i r a fa n n f e r g i þ v í m e i r a f j ö r
TMM 2015 · 3 43
Heiðu, Sesselju síðstakk, Nancy-, Gunnu-, Löbbu- og Liljubækurnar. Maður
velti ekki fyrir sér hvort þetta var gott eða vont, heldur naut þess bara að lesa.
Stelpu- og strákabækur?
Ég las ekki Frank og Jóa eða aðrar bækur þar sem aðallega strákar koma
við sögu. Mér fannst reynsluheimur strákanna yfirleitt ekki koma mér neitt
við. Tinnabækurnar náðu mér þó. Ég las þær allar og lét mig dreyma um
ferðalög og ævintýri eins og þau sem gerast hjá Tinna. Ætli ég hafi ekki lesið
aðallega bækur um stelpur, enda úrvalið nóg. Mér og vinkonum mínum voru
ekki gefnar Tinnabækur og því síður bækur Danans Ole Lund Kirkegaard,
sem fjölluðu bara um stráka. Þegar hann var spurður um ástæðuna fyrir því
sagðist hann aðallega þekkja stráka og þess vegna skrifa fyrir þá – sem er
skrýtið því hann átti bara dætur.
***
Ertu hugrökk?
Ég þarf alveg að taka á henni stóru minni í hvert skipti sem ég sendi
frá mér bók því þótt ég hafi alveg samið bók áður hef ég aldrei skrifað
nákvæmlega bókina sem ég hef þá nýlokið við.
Ef þú værir ekki þú sjálf, hver vildirðu vera?
Ég í fyrramálið.
Hvar annars staðar vildirðu búa? Sveit, staður, borg?
Þegar ég stend á Suðurgötunni með Hólavallagarð í bakið og horfi yfir
Gerður Kristný ásamt Skírni syni sínum. Teikning: Kristín Ómarsdóttir