Tímarit Máls og menningar - 01.09.2015, Blaðsíða 116
G u ð m u n d u r S . B r y n j ó l f s s o n
116 TMM 2015 · 3
Til hvers er Kristi kastað út í heiminn og hvað kemur það Thor Vilhjálms-
syni og Frans frá Assisi við? Þegar Thor kemur að helgum dómum Frans frá
Assisi þá er hann að vitja einhvers sem er handan við hefðbundna skynjun
mannsins. Hann viðurkennir þetta bæði þegar hann ítrekar í texta sínum
hve mikil mystík sé á staðnum og þegar hann lítur hornauga þá sem ekkert
skynja nema hismið. Jafnframt segir hann að leitin að hinum eilífa kjarna sé
heillandi, svo og fórnin. Það er ljóst að Kristi var fórnað, það er með öðru
inntakið í kristninni: „Því svo elskaði Guð heiminn að hann gaf einkason
sinn til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf.“55
Og ennfremur: „Í því birtist kærleikur Guðs til okkar að Guð hefur sent
einkason sinn í heiminn til þess að hann skyldi veita okkur nýtt líf.“56 Hér
í Fyrsta Jóhannesarbréfi er einmitt áréttað að sonurinn hafi verið sendur í
„heiminn“. En um leið og Guð sendir soninn í heiminn til þess í raun að
fórna honum þá sendir hann fulltrúa sinn á vettvang, vegna þess að mað-
urinn sem situr jörðina syndum hlaðinn vísar sjálfur til þess með veru sinni
að eitthvað annað en hann og hið efnislega fái staðist. Þannig býr tvíhyggjan
í raun í manninum. Þetta er einn helsti áhersluþátturinn í guðfræði þýska
guðfræðingsins Karls Rahner, hann var kaþólskur og þótti innan þeirrar
kirkjudeildar fara nýjar leiðir í samskiptum heimspeki og guðfræði.57
Rahner stóð föstum fótum í heimspekihefð Heideggers og því er nærtækt
að máta hugmyndir hans hér.58 Hann er þeirrar skoðunar að í manninum
búi eðlislæg trúarþörf og því sé hann opinn fyrir hinu yfirskilvitlega, Guði.
Sá Guð sem maðurinn er opinn fyrir, segir Rahner, opinberast manninum í
Jesú Kristi.59 Hér er auðvelt að setja Thor inn í hugmynd Rahners; hann er
opinn fyrir mystíkinni og af því að hann er opinn fyrir henni miklar hann
þýðingu þess að fara að helgum dómum Frans frá Assisi. Þannig gengur
hann auðveldar inn í alla þá mynd sem dýrlingurinn hefur mótað og það
fordæmi sem hann hefur sett. Þannig má segja að Frans frá Assisi mildi
þá mótstöðu sem heimurinn hefur gegn Thor og Guði – hann opni sam-
bandið þeirra á milli. Hugmynd sinni lýsir Rahner á þá leið að maðurinn
og leyndardómurinn séu alls ekki andstæður heldur hvor um sig forsenda
hins.60 Hitt er annað að af því að Guð er leyndardómur þá þarf maður-
inn ekki alltaf að uppgötva Guð í Kristi – frá því er til að mynda greint í
Lúkasarguðspjalli á mjög skýran hátt:
Og svo bar við, er hann sat til borðs með þeim, að hann tók brauðið, þakkaði Guði,
braut það og fékk þeim. Þá opnuðust augu þeirra og þeir þekktu hann en hann hvarf
þeim sjónum. Og þeir sögðu hvor við annan: „Brann ekki hjartað í okkur meðan
hann talaði við okkur á veginum og lauk upp fyrir okkur ritningunum?“61
Þarna er meira að segja blandað saman leyndardómi sakramentisins og
leyndardómi guðleika Jesú Krists. En sakramentisskilningur Rahners er
einmitt sá að kirkja Krists á jörðu sé í raun framlenging á honum í tíma og
rúmi, í sögulegu og sýnilegu formi, að hún sé sakramenti eða náðarmeðal.62