Tímarit Máls og menningar - 01.09.2015, Blaðsíða 48
K r i s t í n Ó m a r s d ó t t i r
48 TMM 2015 · 3
Og næstu ljóðabækur …
Já, tíminn leið og ég fór að vinna hjá tímaritaútgáfunni Fróða og skrifaði
skáldsögu og smásagnasafn, en árið 2000, sex árum eftir að Ísfrétt kom
út, birtist ljóðabókin Launkofi. Þar lagði ég í eilítið lengri ljóð en í fyrstu
bókinni og persónulegri. Sjö ár liðu síðan á milli Launkofa og Höggstaðar.
Mér hefur alltaf þótt óskaplega hátíðlegt að gefa út ljóðabók, það er svo mikið
spari. Í Höggstað eru ljóðin orðin enn persónulegri. Ég safna þessum ljóðum
á löngum tíma. Ég vinn að ljóðagerð jafnt og þétt en er ekki hraðkvæð.
Landamæragæslan hefur alltaf verið ströng í ljóðheimum mínum en ég hef
verið að reyna að opna þau sífellt meira.
Ég hætti í blaðamennskunni fyrir ellefu árum til að geta sinnt rit höf undar-
starfinu í fullu starfi. Ég hafði komist að því þegar ég dvaldi nokkra mánuði
í fríi frá blaðamennskunni í Nice í Suður-Frakklandi að hugmyndunum
snjóaði að mér þegar ég þurfti ekki að velta því fyrir mér hvað ætti að vera
á forsíðu næsta Mannlífs. Mig langaði líka til að fá tóm til að lesa meira og
fylgjast betur með því sem var að gerast í bókmenntaheiminum. Ég reyni að
lesa sem mest og er tíður gestur Borgarbókasafnsins og bókasafns Norræna
hússins.
Áhuga minn á sögunni um Frey og Gerði Gymisdóttur sem sagt er frá í
Skírnismálum, einu Eddukvæða, má rekja til þess þegar ég var barn og hnaut
um Goð og garpa eftir Brian Branston í þýðingu Sigurðar A. Magnússonar á
bókasafninu. Ég hafði líka mikinn áhuga á mannanöfnum svo fyrsta þekkta
konan sem hét Gerður hlaut að vekja athygli mína. Haustið 2008 var ég úti
í Stokkhólmi og byrjaði að yrkja Blóðhófni (2010) þar. Tveimur árum síðar
(2012) komu Strandir síðan út. Þar er líka að finna bálk sem heitir Skautaferð.
Árin á undan hafði ég ferðast víða á bókmenntahátíðir til að lesa upp, til
Indlands, Úganda og fleiri framandi landa sem ég hafði aldrei átt von á að fá
að sjá. Þessir staðir fengu ljóð í Ströndum. Á sama tíma var Skautaferð líka að
verða til og því fengu lesendur Stranda stök ljóð og einn bálk.
***
Hver er hugmynd þín um (fullkomna) hamingju?
Friður, ró og sátt.
Hvað óttast þú mest?
Febrúar.
Hvað kanntu best að meta í eigin fari?
Vinnusemi.
Hvað kanntu best að meta í fari annarra?
Bjartsýni og húmor.