Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2015, Side 67

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2015, Side 67
Þ r æ ð i r t í m a n s TMM 2015 · 3 67 David Mitchell kom svo lesendum sínum enn á óvart árið 2010 þegar fimmta skáldsagan The Thousand Autumns of Jacob de Zoet kom út. Þessi gilda sögulega skáldsaga gerist í lok 18. aldar, á svokölluðum sakoku-tíma; þegar Japan var nær algjörlega lokað fyrir öllum utanaðkomandi afskiptum. Ritarinn Jacob de Zoet er lítið tannhjól í þeim takmörkuðu utanríkisvið- skiptum sem Japanir áttu við Hollendinga á manngerðu eynni Dejima í Nagasaki-flóa. Hann fellur fyrir innfæddri ljósmóður með uggvænlegum afleiðingum fyrir hana auk þess að flækjast í flókið valdabrölt spillingarinnar sem grasserar iðulega á landamærum hafta og frelsis. Mikið er lagt upp úr því að umhverfi og aðbúnaður persónanna komi heim og saman við bestu heimildir og þannig veitir sagan áhugaverða innsýn í þennan stað og þennan tíma – og ástina um leið enda persónurnar listavel spunnar og lifandi. Þótt fantasían virðist fjarri í þessum tveimur síðastnefndu skáldsögum Mitchells kraumar hún undir, og skýtur svo upp kollinum með látum í nýjustu skáldsögu hans, The Bone Clocks. Á síðum hennar ganga persónur úr fyrri verkum Mitchells nefnilega í endurnýjun lífdaga, í orðanna fyllstu merkingu, og varpa nýju og áhugaverðu ljósi á það sem á undan er lesið! Bókin sem bindur allt saman Þessi herðabreiða skáldsaga, sem kom út í fyrra, er sett saman úr sex frásagnarþáttum sem endurspegla hver á sinn hátt æviferil Holly Sykes allt frá því hún strýkur að heiman árið 1984. Við hittum hana í Sviss nokkrum árum síðar með augum hins siðblinda sjarmörs Hugo Lamb, kynnumst svo eiginmanni hennar, Ed, sem er stríðsfréttaritari í Írak áður en við fáum hana í heimsókn til Íslands ásamt hinum áðurnefnda bitra rithöfundi Crispin Hershey. Fimmti og næstsíðasti kaflinn fjallar um hádramatískan bardaga góðs og ills þar sem svokallaðir Horologists, algóðir náungar sem endur- holdgast reglulega berjast við skúrka sem kallast Anchorites; en fólin hægja á öldrun sinni með því að drekka í sig blóð og sálir saklausra barna með bros á vör. Í The Bone Clocks bindur Mitchell enn betur saman sagnaheiminn sem hann hefur skapað á ferlinum og leggst meira að segja í það vandasama verkefni að útskýra hluta gangverksins bak við furðurnar. Og þótt kaflarnir um baráttu hinna eilífu góðu við hina síungu vondu séu fjörlega skrifaðir þá virka sumar lýsingarnar eins og ýkjukennd skopstæling á fantasíubók- menntum. Ofsögur sem eru eins og Harry Potter og The Matrix hafi eignast ofvirkt barn saman, gleðja nefnilega hvorki sjóaða fantasíuseggi né jarðbundnari bókmenntasælkera. Þrátt fyrir ofangreinda annmarka var skáldsagan tilnefnd til Booker verð- launanna, enda lumar hún á feykivel skrifuðum sagnaþáttum. Angist, tog- streita og spennufíkn stríðsfréttaritarans eru áþreifanlegar og lokakaflinn sem gerist á Írlandi árið 2043 er áleitinn og nöturlegur. Þar er dregin upp
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.