Tímarit Máls og menningar - 01.09.2015, Page 69
Þ r æ ð i r t í m a n s
TMM 2015 · 3 69
fyrirlestri sínum í Húsi bókmenntanna í Reykjavík (sem líkist reyndar
Perlunni meira en holunni við Þjóðarbókhlöðuna):
Rithöfundar skrifa ekki í tómarúmi. Við vinnum á raunverulegum stöðum, í her-
bergi, helst í húsi eins og Gljúfrasteini Laxness, en við skrifum líka í ímynduðu
rými. Milli pakka og kassa, hillna og skápa þar sem allt er fullt af …. drasli, fjársjóð-
um, bæði menningarlegum – vögguvísum, goðsögnum, sagnfræði, því sem Tolkien
kallaði ‘safnhauginn’; og líka persónulegum hlutum – sjónvarpsefni barnæskunnar,
heimaræktaðri heimsfræði, sögum sem við heyrum frá foreldrum okkar, og seinna,
frá börnunum okkar – og því allra mikilvægasta, landakortum. Huglægum kortum,
kortum með brúnum. Og fyrir Auden, eins og svo mörg okkar, þá eru það brúnirnar
á landakortunum sem heilla …*
* Tilvitnanir í skáldsöguna The Bone Clocks eru í þýðingu höfundar.