Tímarit Máls og menningar - 01.09.2015, Page 83
D av e E g g e r s
TMM 2015 · 3 83
Frásögn lýkur
Greinarhöfundur hefur ekki fengið tækifæri til þess að segja frá því hversu
frábær rithöfundur Dave Eggers er. En vonandi verður heimsókn hans á
Bókmenntahátíð í Reykjavík íslenskum rithöfundum og almenningi öllum
innblástur til góðra verka, sérstaklega þegar kemur að því að kveikja neista á
meðal yngstu kynslóðarinnar því þar býr sköpunargleðin og krafturinn sem
samfélagið okkar þarf á að halda.
Hefðbundið niðurlag9:
Dave Eggers býr í Norður-Kaliforníu ásamt konunni sinni, rithöfundinum
Vendela Vida, og tveimur börnum. Hann er ekki með internetið heima hjá
sér því þá myndi hann gleyma sér á Youtube að horfa á Kajagoogoo mynd-
bönd. Þess í stað leggur hann bílnum sínum reglulega fyrir utan nálæga
timbursölu og laumast á þráðlausa netið þar.
Tilvísanir
1 Nei, ég fékk ekki að gera það. Bókin er 496 blaðsíður og hefði því aldrei komist fyrir. En hún er
496 blaðsíður (auk formála) af hrífandi og einlægri frásögn sem ég mæli með að allir lesi.
2 Þvert á það sem titilinn gefur til kynna var tímaritið gefið út tvisvar til þrisvar á ári í upphafi. Í
dag kemur það þó út fjórum sinnum á ári og verða áskrifendur því ekki sviknir af kaupunum.
3 Tímaritið og bækurnar voru prentuð á Íslandi þar til krónan var orðin of sterk gagnvart dollar-
anum, sem er sérkennileg tilhugsun í dag.
4 En það er ennþá pláss hér.
You Shall Know Our Velocity (2002), skáldsaga um tvo vini, sem eftir fráfall þess þriðja, leggja
í vikulanga heimsreisu til þess að reyna að gefa pening, sem þeim þóttu þeir ekki eiga skilið.
How We Are Hungry (2004), smásagnasafn.
What Is the What: The Autobiography of Valentino Achak Deng (2006), skáldsaga byggð á
sannri sögu súdansks flóttamanns.
Zeitoun (2009), sönn saga sýrlensk-amerísks manns sem lagði af stað í kanó til að bjarga
nágrönnum sínum eftir fellibylinn í New Orleans en endaði með því að vera handtekinn að
ástæðulausu fyrir innbrot í eigið húsnæði.
The Wild Things (2009), skáldsaga byggð á handriti Eggers að kvikmyndinni Where the Wild
Things Are og samnefndri barnabók Maurice Sendak.
A Hologram for the King (2012), skáldsaga um útbrunninn amerískan sölumann sem ferðast til
Sádi-Arabíu í þeim tilgangi að tryggja sér viðskiptasamning.
The Circle (2013), skáldsaga um unga konu sem hefur störf hjá gífurlega valdamiklu samfélags-
miðlafyrirtæki, sem er auðvitað ekki allt þar sem það er séð.
Your Fathers, Where Are They? And the Prophets, Do They Live Forever? (2014), skáldsaga um
mann í leit að svörum, öll rituð sem samtal.
Visitants (2015), safn ferðasagna Eggers frá síðustu 20 árum.
5 Brottfall nemenda sem fara í gegn um ScholarMatch er 9% á móti 33% landsmeðaltali.
6 Hvað er þetta hvað? Rúnar Helgi Vignisson þýddi. Bjartur, 2008.
7 Bókunum og samtökunum, sem nefnd eru í þessari grein, hefur Eggers unnið að í samstarfi við
hóp hugsjónafólks sem greinarhöfundur hefur ekki nefnt því greinin er jú um Dave.
8 Hefði kannski átt að koma fyrr, en samhengið …
9 Eftir á að hyggja er greinin frekar hefðbundin svo þessi millifyrirsögn er kannski óþörf.