Tímarit Máls og menningar - 01.09.2015, Side 92
92 TMM 2015 · 3
B ó k m e n n t a h á t í ð
hefur stundum verið skilgreind sem skáldsaga en í bókinni er raðað saman
örsögum sem sumar tengjast meðan aðrar standa alveg stakar.
Smásagnasöfn Helle Helle komu út árin 1996 og 2000, fyrst Rester
(Afgangar) og svo Biler og dyr (Bílar og dýr). Í smásagnasöfnunum má segja
að Helle Helle slái þann tón sem síðan hefur fylgt verkum hennar. Þetta á
við um sögusvið, persónur, nálgun og stíl. Umfjöllunarefni smásagnanna er
iðulega samskipti fólks í parsamböndum sem oftast einkennast af einhvers
konar ógöngum, vegna þess að persónurnar tala ekki saman, að minnsta
kosti ekki um það sem máli skiptir. Sögurnar hverfast flestar um litla atburði
en einkenni þeirra er hið ósagða sem liggur í loftinu milli persónanna.
Lesandinn finnur sterkt fyrir djúpri einsemd persónanna sem í yfirgnæfandi
meirihluta eru konur.
Fyrsta skáldsaga Helle Helle, Hus og hjem (Hús og heimili) kom út milli
smásagnasafnanna tveggja, árið 1999. Þar er parsambandið og einsemdin
innan þess einnig í brennidepli. Ung kona flytur í bæinn þar sem hún
ólst upp og fer að koma sér fyrir í húsi sem hún og maðurinn hennar hafa
keypt. Hún er flutt inn á undan eiginmanninum en henni sækist það seint
að undirbúa komu hans með því að mála og taka upp úr kössum, heimilið
speglar þannig allt hið ófrágengna í sálarlífi aðalpersónunnar.
Næsta bók Helle Helle Forestillingen om et ukompliceret liv med en mand
(Ímyndin um einfalt líf með karlmanni) kom út árið 2002. Aftur er parsam-
bandið í brennidepli og hér hverfist sagan um það þegar barnshafandi kunn-
ingjakona flytur inn á par í lítilli íbúð og ógnar jafnvæginu í tíðindalitlu og
gleðisnauðu lífi þeirra og sambandi.
Barnabókin Min mor sidder fast på en pind (Mamma mín er föst á spýtu)
kom út árið 2003. Þetta er bók með þulum þar sem höfundurinn leikur sér
að tungumálinu og hljóðum þess en áhugi Helle Helle á tungumálinu kemur
víða fram í sögum hennar, til dæmis í lýsingum á því hvernig persónur bera
fram ákveðin orð. Frá því að barnabókin kom út hefur Helle Helle eingöngu
skrifað skáldsögur fyrir fullorðna.
Rødby-Puttgarden kom út árið 2005. Hér segir af lífi systra sem vinna í
snyrtivöruverslun á ferjunni frá Rødby á Lálandi til Puttgarten í Þýskalandi.
Brotum úr æsku þeirra í Rødby er fléttað saman við ofurnákvæmar lýsingar
á afar hversdagslegum viðburðum. Yngri systirin er sögumaður og hefur
flosnað upp úr háskólanámi sínu og snúið aftur til heimabæjarins þar sem
eldri systir hennar útvegar henni vinnu á sínum vinnustað.
Árið 2008 kom út skáldsagan Ned til hundene (Í hundana). Þar er
sögumaður einmana kona, rithöfundur með ritstíflu, sem hefur yfirgefið
mann sinn. Hjón á jaðri samfélagsins taka hana upp á arma sína, fyrst með
því að bjóða henni gistingu en svo með því að gera hana að þátttakanda
í fábreytilegum hvunndegi sínum af algeru skilyrðisleysi. Sem fyrr eru
lýsingarnar á smáatriðum nákvæmar en ýmsar grundvallarupplýsingar oft
af skornum skammti.