Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2016, Side 44

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2016, Side 44
Þ r ö s t u r Ó l a f s s o n 44 TMM 2016 · 2 Skýrum þetta nánar. Þótt fortíðin hafi vissulega margar mismunandi birtingarmyndir og ásýndir, getum við skilgreint sem fortíð allar þær hreyfingar og stefnur, sem styðjast við misöfluga valdræðishyggju – átóriterisma – sem er ætíð á skjön við nútíma opið vestrænt lýðræði. Sterkur foringi, veikar stofnanir, skert fjöl- miðlafrelsi, mannréttindi á hliðarlínunni, girt og varin landamæri. Í þessari skírskotun skiptir það ekki öllu máli, hvort hugmyndirnar komi frá vinstri eða hægri. Þær koma frá þjóðernissinnum, sem predika valdbeitingu ríkisins í stað lýðræðis fjöldans, en þannig samfélag er jafnan lokaðra og sniðið að þrengri sérhagsmunum. Þið kannist við nöfnin: „Sannir Finnar“, „Svíþjóðardemókratar“, „Danski þjóðarflokkurinn“, „Front natio- nal“, „Hinn pólski flokkur“, „Réttur og réttlæti“ o.fl. Sama gildir um hreyfingar sem ættaðar eru úr aðdáendahópum ein- stakra valdsmanna, sem sýnt hafa glögga valdræðistilburði; eða úr baráttu- samtökum til varnar evrópskri menningu, svo ekki sé talað um liðsmenn „Íslamska ríkisins“, sem með hrottaskap og hryðjuverkum vilja kveða niður hvers konar frjálslynd lífsviðhorf og upplýst samfélög. Allt sækir þetta nær- ingu úr sömu lindinni – fortíðinni. Slíka hópa, stóra sem smáa, má finna í flestum ríkjum álfunnar, einnig hérlendis. Þeir stefna að skertu lýðræði, þögulum fjölmiðlum og þrengra samfélagi, lokuðum efnahag og upphafningu á fullveldi þjóða. Þarna er um öfl að ræða þar sem afturhaldssækin hugsun úr fortíð, sem við héldum að væri komin á ruslahaug sögunnar, ákveður stefnur og framgöngu hreyfinga og stjórnmálaafla í nútíð. Margar þjóðir í álfunni hafa kosið yfir sig ríkisstjórnir sem blekkja þegna sína með margs konar tálsýnum og hugmyndum úr fortíð sem taka nútíðina í herkví. Sömu hugmyndatengsl má greina hjá ríkisstjórn Íslands. Tökum lítið dæmi: Hvaðan ætli þær fyrirmyndir séu til dæmis komnar sem endur- speglast í nýgerðum búvörusamningi? Engir samningar snerta almenning meir en þessi samningur. Hvaðan eru viðmiðin tekin? Hann þarf í reynd hvorki að bera undir bændur sjálfa né alþingi. Þetta er gert af sömu mönnum og kvarta undan lýðræðishalla hjá ESB. Við gætum haldið áfram með fleiri dæmi. Oft er talað um að við lifum á nýfrjálshyggjutímum, og þá er yfirleitt átt við hömlulausan markaðsátrúnað og einsleita gróðahyggju á grunni kapítalismans, sem eins konar grunngildi samfélagsins. Ef grannt er skoðað er nýfrjálshyggjan hins vegar meira. Áhrif hennar eru ekki eingöngu efna- hagsleg. Hún er frekari til fjörsins en svo. Ítök hennar í hugsunarhætti okkar eru sterk. Segja má að nýfrjálshyggjan sargi sundur samhengi tímanna, því hún byggir nefnilega á tvíhyggju: þ.e. samfélagslegri kyrrstöðu, um leið og hún rekur hagkerfið áfram á fleygiferð og skapar mikinn auð. Hún er gjöful á auðsköpun og atvinnu sem veldur
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.