Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Síða 24

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Síða 24
Einar Kárason svo að ég myndi lifa af hálfs árs pásu; ég sótti um til þriggja ára til að skrifa stóra sögulega skáldsögu um efni sem ég útlistaði fyrir nefndinni, og hún mun koma þótt hún frestist kannski um ár frá því sem var upp- haflega planið.“ Manni verður ósjálfrátt hugsað til þess þegar Jónas frá Hriflu lækkaði Halldór Laxness í launum. Honum er ennþá legið á hálsi fyrir það, sextíu árum síðar ... „Já, Halldór var lækkaður úr 5000 krónum í 1800 krónur fyrir að vera vont og óþjóðlegt skáld. Það sama má eflaust segja um mig og auðvitað miklu frekar - maður mælir sig ekki við sjálfan stórmeistarann." Geysileg forréttindi Að lokum ein stór spurning: Hvernig er staðan í íslenskum bókmenntum núna í byrjun nýrrar aldar -ogá hvaða leið eru þær? Lestu mikið? „Já, já, ég les allt þetta helsta sem kemur út. Það byrjaði mikil uppsveifla í skáldsagnaritun um 1976-7, og næstu tíu ár eða svo komu fram nokkrir nýir höfundar á ári. Þetta er kynslóðin mín þó að ég sé þar í yngri kantinum. í henni eru meðal annarra Ólafur Haukur, Ólafur Gunnarsson, Pétur Gunnarsson, Þórarinn Eldjárn, Stein- unn Sigurðardóttir, Einar Már og Vigdís Grímsdóttir. Meiri vafi hvort Guðmundur Andri, Hallgrímur Helgason og Ólafur Jóhann Ólafsson eiga að teljast í þeim hópi, þeir eru örlítið yngri og byrjuðu eitthvað seinna. Allt eru þetta góðir höfundar og engin sensjasjón þó að þetta fólk gefi út góða bók sem það þó gerir alveg reglulega. Við höfum öll verið mjög aktív og líka yngri menn eins og Gyrðir og Sjón, Kristín Ómars og fleiri. Eftir þessa miklu bylgju kom dálítið bil, efnilegir höfundar komu ekki fram eins ört, en á allra síðustu árum hefur komið talsvert mikið af góðum höfundum. Sumum þeirra hef ég tröllatrú á - eins og Stefáni Mána, hann á eftir að verða verulega góður höfundur, sömuleiðis var ég ánægður með Landslag er aldrei asnalegt, fyrstu bók Bergsveins Birgis- sonar, einhver skemmtileg geggjun þar á ferðinni eins og verður að vera. Mér sýnist Steinar Bragi mikið efni, og að sjálfsögðu Guðrún Eva Mín- ervudóttir - að maður tali nú ekki um Andra Snæ. Þetta unga fólk hefur mikið sjálfstraust, það lítur svo á að það komi fram með nýtt erindi - sem er alltaf skemmtilegt. Það eru að sumu leyti mikil forréttindi að vera rithöfundur á Islandi. Mínusinn er hvað markaðurinn er lítill, en þjóðin er bara svo litterer. Þetta getur hljómað eins og bölvað mont eða hallærislegt skjall en það er 22 TMM 2004 • 2
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.