Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Síða 33

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Síða 33
Dulmagn Vigdísar öryggi þeirra og sjálfstrausti er upplagið sem þær fá til að vinna úr á þroskabrautinni runnið af rótum íslenskrar alþýðumenningar og trúar. Það er hins vegar með útkomu Hjarta, tungls og blárra fugla (2002) að þeir sem vilja tengja verk Vigdísar Grímsdóttur töfraraunsæinu gætu fundið rök fyrir máli sínu. Sagan, sem sögð er af Lenna yngri, opnast í „fjallaþorpinu Madrid, fyrir sunnan Santa Fe“ þar sem kyrrðin er svo mikil að „maður heyrir kanínur skjótast milli runna og bláfugla verpa í trjám“ (8). Samskipti Lenna við uppeldisfélaga sinn, nágrannastelpuna Editu, opna ný tækifæri fjölmenningarlegrar túlkunar á innihaldi textans því hún „er indjáni“ (17) og „trúir á raddir blóma, dýra og engla, talar við cayota og kanínur og skilur mál náttúrunnar svo vel að hún syngur með fiðrildum og öðrum vængjuðum verum sem enginn sér nema hún“ (12). Hún „ríður á baki cayota“(93) sem „skíta stundum gulleggjum“ (33) og segir sögur af konu með „langa og breiða þöður á bakinu sem kemur í veg fyrir að hún geti legið út af‘ (44). En það kemur fljótlega á daginn að Lenni er eplið sem féll ekki langt frá eikinni. Hann hefur ákveðið að fara til íslands því í draumum hans „er land, eyja í hafinu, há fjöll og jöklar, snjór og rigning, ljóð og sögur“ (25). Um leið og sagan segir frá uppvaxt- arárum Lenna á sléttum Nýju Mexíkó þá undirbýr hún lesandann undir ferðina heim, ferð hans til Islands. Lenni er hagleiksmaður á tré og til- veran snýst um að skera út fugla og furðuverur, hlusta á sögur og ævin- týri, um leið og hugmyndir hans um raunveruleikann mótast af því áþreifanlega og útskýranlega í umhverfmu. Honum hefur lærst að maður mótmælir ekki konum og að það eru þær sem láta hlutina gerast. Veru- leiki Lenna mótast af afanum Lenna og prédikaranum Róbert, sem lifa undir stjórn kvennanna Floru og Rósítu. Hver karl hefur sína konu og hver kona sína veröld, sinn sjálfstæða hugarheim. Og það er ef til vill hér sem Gauti Kristmannsson fínnur latnesk-amerískt töfraraunsæi því þessi margveruleiki kvennanna í lífi Lenna mótar mjög andrúmsloff þríleiks- ins. Hér kemst verkið næst því að geta tengst þeirri merkingu sem Carp- entier leggur í hugtakið, vegna þess að hver kvenpersóna þríleiksins er margslungin og óræð. Rétt er þó að hafa hugfast að margræði þeirra er ekki menningarlegt heldur huglægt. Það byggir á persónulegum þáttum en ekki umhverfislegum. Hóran Flora sem gengur Lenna í ömmu stað „kunni allt, skildi allt og vissi allt sem skipti máli“(132) en býr á sama tíma í fjarlægri veröld drykkjukonunnar þar sem sögur um glæsta tíma og fyrri blómaskeið móta hvern dag (111-113). Tilvera Rósítu móður hans er einnig fjarlæg, dul og einhvernveginn ekki hér og nú. Hún talar „við mig í hálfkveðnum vísum“ (35) og vísar frá sér öllu tali um fjarveru föðurins sem lengi var vænst en „sendi aldrei nema þetta eina bréf‘ (47). TMM 2004 • 2 31
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.