Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Side 61

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Side 61
Tunglskinsmjólk Hún er orðuð með afgerandi hætti, oft brútalt. Ljóðin eru gjarna ort út frá stóru hlutföllunum, í alheimslegu samhengi: Himinn og jörð og tittlingur og píka undirstaða heims. Þau elskuðust á rústum heims og skópu nýjan. Eins og í hinni fornu náttúrutrú skoðar hann karlmanninn sem tákn himinsins og konuna sem táknmynd jarðar. í ljóðinu í „Höfuðskepnum“ (Hlutabréf í sólarlaginu) sýnir Dagur nátt- úruöflin í sinni sterkustu mynd, þau verða táknræn fyrir kynorkuna. í þessu ofurmyndræna ljóði ríkir samsemd, kraftur og gleði; einskonar mögnuð og dularfull einingarkennd. Þar er notað líkingamál hinna nátt- úrulegu krafta með vísunum í íslenska þjóðtrú. Það stílbrigði er gegnum- gangandi í ljóðum Dags. Hann notar það til að mynda í tengslum við kynlífslýsingar, einkum í síðustu bókunum þar sem utangarðsmennskan er farin að setja skýrara mark á skáldskapinn. Það er oft þá eins og Dagur sé alveg genginn í björg hinnar heiðnu og tröllslegu þjóðtrúar. Svipmót hans verður stórskorið eins og útilegumanna þjóðsagnanna, nema víða- vangur hans er stræti og skúmaskot borgarinnar. Sérstætt og sterkt er ljóðið „Kaupstaðarferð" í bókinni Fyrir Lauga- vegsgos. Þar bregður Öræfajökull sér hoppandi til borgarinnar og er flæmdur þaðan burt með háðsglósum smámennanna sem gera hróp að honum og kalla hann hundaþúfu. Þar finnst mér Dagur vera að lýsa sjálfum sér og viðtökum borgarmenningarinnar sem neitar að viður- kenna skapandi máttinn sem í honum býr. * * * Sú menning er Dagur fann á unga aldri austur í Hoffelli er nú hrunin og horfin úr sveitum landsins. Líkamleg vinna eða áreynsla er að miklu leyti úr sögunni vegna tæknimenningarinnar. Menn komast naumast í sam- band við líkama sinn lengur, eða sinn innri mátt, nema í gegnum kynlíf sem í seinni tíð er notað „ad nauseam" af gróðaöflunum. Á náttúru- lausum tímum er hamast á sexinu. Fegurðin og frelsið er tekið, snúið niður og gert ánauðugt. Síðan er flaggað innantómri glansímynd. Degi fannst reykvísk borgarmenning tepruleg á sínum tíma. Núna hefur það nánast snúist við. Ég er ekki sannfærð um að honum hefði líkað þessi þróun þrátt fyrir off á tíðum gróft orðfæri í ljóðum hans. Enda heitist hann ávallt við gróðaöflin. Að endingu veit hann kannski að TMM 2004 • 2 59
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.