Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Page 84
Birgir Hermannsson
II
1 viðtölum þennan dag réðist Davíð einnig að pólitískum andstæðingum
sínum, sérstaklega tengslum Jóns Ólafssonar kaupsýslumanns við R-list-
ann og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur:
Sigmar: „En svo við spyrjum þig líka um það sem þú sagðir um R-listann og Ingi-
björgu Sólrúnu í viðtalinu í morgun. Þú sagðir að ja, svona í raun og veru gafst
í skyn að það hefði verið mjög óeðlilega staðið að því þegar borgin keypti
„lóðadraslið" eins og þú orðaðir það, fyrir aftan Stjörnubíó, eign Jóns þá. Það
hefði verið ákveðið fyrir kosningarnar, síðan gert eftir kosningar.1'
Davíð Oddsson: „Ég sagði að það hefði verið gert eftir kosningar. Ég hygg að það
hafi verið á fyrsta eða öðrum fundi eftir kosningar, fyrir 130 milljónir og eng-
inn veit ennþá hvað eigi að gera við þessar lóðir.“
Sigmar: „Veistu þetta, hefurðu einhverjar sannanir fyrir þessu?“
Davíð Oddsson: „Ég segi bara nákvæmlega það sem ég veit og það sem þú getur
vitað ef þú skoðar málið. Ég sagði að þetta hefði verið ákveðið skyndilega á
fyrsta fundi eftir kosningar, það hefði engum manni verið sagt frá því fyrir
kosningar. Það hefði nú verið skynsamlegt að segja fólkinu frá því fyrir kosn-
ingar að það ætti að kaupa einhverja kumbalda af Jóni Ólafssyni.“
Kristján: „En er ekki ágætt að losna við þessa kumbalda ..."
Davíð Oddsson: „Það má vel vera. Þetta verður út úr öllu korti náttúrulega, það
þýðir ekki að vera að horfa á það, og þetta er gert strax daginn eftir eða á fyrsta
fundi eftir kosningar án þess að nokkur sé látinn vita fyrir kosningar.“
Kristján: „En þú ert að væna þennan lista um einhver óeðlileg tengsl, innan gæsa-
lappa, við þennan kaupsýslumann með þessum orðum, er það ekki?“
Davíð Oddsson: „Bíddu, kom ekki út heilt blað einhvern tímann, var það 1995 eða
6 þar sem stóð á forsíðunni: Jón Ólafsson greiðir upp skuldir R-listans. Þetta
hefur lengi legið fyrir. Og ég veit ekki til þess að Jón Ólafsson hafi, annað en að
hann hafi sagt mönnum frá þessu í stórum stíl.“
Hér er um mjög alvarlegar ásakanir að ræða, ekki síður alvarlegar en þær
að forsvarsmenn Baugs hafi rætt sín á milli að múta forsætisráðherra. í
raun er hér gengið lengra: gefið er í skyn að ekki hafi aðeins verið rætt
um að kaupa sér pólitíska velvild, heldur hafi það beinlínis verið gert.
Sjálfstæðismenn tóku málið upp í borgarstjórn Reykjavíkur á svipuðum
forsendum og gagnrýndu R-listann fyrir spillingu og brigsluðu um
mútur. Reykjavíkurborg hefur nú gengið frá skipulagi á „lóðadraslinu“
og þar með eru ásakanir Davíðs komnar í sitt rétta samhengi: Fyrir þeim
virðist ekki flugufótur, enda hefur þeim ekki verið fylgt eftir af Davíð né
öðrum sem báru þær fram. Fjölmiðlar virðast ekki hafa tekið þessar full-
yrðingar alvarlega eða ekki nennt að ganga úr skugga um áreiðanleika
82
TMM 2004 • 2