Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Side 88

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Side 88
Birgir Hermannsson sögu nema yfirborðslega, útskýra fyrir lesendum sínum hvers vegna þessar deilur áttu sér stað yfir höfuð. Voru þær réttmætar? Er við hæfi að forsætisráðherra hafi svo sterkar skoðanir á einstökum fyrirtækjum, eða var í þessu tilfelli fullgild almenn ástæða fyrir því? Hér má ekki rugla saman tveimur ólíkum efnisatriðum: annars vegar ástæðum deilnanna og hins vegar mati á því hver sagði satt eða ósatt. í annan stað má spyrja: ef Davíð Oddssyni var jafnbrugðið og hann vill vera láta, hvaða ráðstafanir lét hann þá gera eftir að hann kom heim frá London? Eðlilegast hefði verið að kæra athæfi Baugsmanna til lög- reglu, en þar fyrir utan má spyrja hvort ekki hefði verið ástæða til að grípa til einhverra almennra ráðstafana. Var slíkt athugað og var niður- staðan sú að ekki hefði verið hægt að grípa til neinna ráðstafana? Engin svör. Hvaða „öflum“ er Davíð að standa uppi í hárinu á? Var einhver fótur fyrir ásökunum hans á hendur R-listanum? Hefði ekki verið full ástæða að grandskoða allar fullyrðingar Davíðs þann 3. mars? Auðvitað. En það var ekki gert. Það er ekki íslenskum fjölmiðlum og íslenskri blaðamannastétt til mikils sóma hvernig tekið var á þessu máli. Það er vissulega óvenjulegt og erfitt viðfangs, en slík mál eru prófsteinn á getu manna til að sinna hlut- verki sínu. f það heila virðist þetta mál sýna hversu vanbúnir íslenskir fjölmiðlar eru til að sinna því hlutverki sínu að kanna mál niður í kjöl- inn ef þörf krefur. V Vissulega hefur margt breyst í íslenskri fjölmiðlun síðan á bolludaginn 2003. Norðurljós er öflugur fjölmiðlarisi með nýjum eigendum og sam- keppnin hefur því aukist. Aukin samkeppni fjölmiðla er auðvitað nokkur vörn gegn því að mál séu þöguð í hel með þeim hætti sem viðbrögðin við upphlaupi Davíðs eru dæmi um. Enginn vafi er á því að Fréttablaðið hefur opnað íslenska fjölmiðlun og skapað gjörbreytta stöðu á mark- aðnum. í ljósi þessa þarf ekki að koma á óvart að Morgunblaðið vill setja lög á keppinautinn. Með þessu er ég þó ekki að hefja Fréttablaðið upp á einhvern stall sem fyrirmynd, síður en svo, aðeins benda á þá staðreynd að blaðið hefur aukið samkeppni á íslenskum fjölmiðlamarkaði. En samkeppnin ein og sér er líklega ekki nægjanleg til að bæta fjöl- miðla á íslandi, hugarfarsbreytingu þarf til. Til þess að svo geti orðið þarf að viðurkenna að íslenskir fjölmiðlar eru lélegir í alþjóðlegum saman- burði og vanburða til að sinna hlutverki sínu. Fjárhagsleg staða íslenskra fjölmiðla almennt hefur verið bág, en bág fjárhagsstaða skýrir varla getu- 86 TMM 2004 • 2
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.