Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Page 92

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Page 92
Dagný Kristjánsdóttir áfengismeðferð. Allar eru þær á réttri leið núna, meðlimir í AA samtök- unum, í námi eða störfum, að byggja upp nýja tilveru. Allar hafa þær skarað fram úr og hlotið frægð og frama vegna fegurðar, tónlistargáfu og skáldgáfu. Engin þeirra er orðin fimmtug. Venjulegur lesandi hlýtur að spyrja sig að því í fyrsta lagi hvers vegna svo hæfileikaríkar og góðar stúlkur hafi orðið fíklar og verið misþyrmt og misnotaðar? Hann spyr sig mögulega að því hvort þær segi söguna alla eða dragi eitthvað undan? Hann furðar sig kannski á því hvernig þær geti sagt opinberlega ffá niðurlægingu sinni og hvað knýi þær til að gera það? Kannski spyr hann sig líka að því hvort niðurlæging þeirra og þjáningar komi honum við og hvers vegna hann sé að lesa þessar sögur yfirleitt? Játningar Soffía Auður Birgisdóttir bendir á að sjálfsævisagan, sem bókmennta- grein, eigi rætur sínar að rekja til tveggja meginverka sem komu út með þrettán alda millibili og voru gerólík. Þetta eru Játningar Ágústínusar (397-401) og Játningar Jean Jacques Rousseaus (1781/1789). Um þessi verk segir Soffía Auður: „Ágústínus segir sögu af falli, frelsun og upprisu og þetta ferli skýtur upp kollinum í ótal síðari tíma sjálfsævisögum og má meðal annars sjá í þeim verkum sem marka upphaf íslensku sjálfsævisög- unnar. Rousseau ritar þroskasögu og varnarrit sem einnig gat af sér ótelj- andi verk svipaðrar tegundar þegar fram liðu stundir.“7 Bandaríski fræðimaðurinn Rita Felski bendir á að píetisminn í Þýska- landi og púrítanisminn í Englandi á sautjándu öld hafi hvatt mjög til sál- arrannsókna og innri leitar þar sem engum steini skyldi óvelt í barátt- unni fyrir þeirri sjálfsþekkingu sem ein tryggði dyggðugt líf og sáluhjálp. Játningarnar eru birtingarmynd á venju- og trúarhelguðu siðferði og lögum, segir Rita Felski, þar sem hugtök eins og „samviska“, „sjálf‘, „sekt- arkennd“ og „synd“ eru í aðalhlutverkum. Þannig má segja að játning- arnar sýni vel hvernig valdhafarnir þvingi þegnana inn í sama mót en sjái til þess að þeir sem víki út af hinum þrönga vegi láti svipuna ganga á sjálfum sér. Játningarnar eru þó ekki aðeins iðrunar- og yfirbótartextar, á átjándu öld voru þær líka notaðar til að ögra ríkjandi venjum og siðum, hylla einstaklinginn og talunarkalausa sjálfsverund hans.8 Nú voru játningabækur allra bóka vinsælastar á áttunda áratugnum á dögum Rauðsokkahreyfingarinnar sálugu; þær voru notaðar í vitundar- vakningarhópum til að ræða allt milli himins og jarðar frá kynsjúk- dómum til blætisgildis vörunnar í kapítalísku samfélagi. Þessar bækur voru alls ekki lesnar vegna einstaldinganna sem þær skrifuðu og þó höf- 90 TMM 2004 • 2
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.