Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Blaðsíða 94
Dagný Kristjánsdóttir
hún léttist um 3 kíló í viðbót en keppnisstjórnandinn grípur í taumana.
Lesandi fær innsýn í kostnaðinn sem fegurðardrottningar bera af útliti
og lífsstíl sem hæfir milljónerum og hve stór hópur af starfsfólki og ráð-
gjöfum hefur vinnu af einni fegurðardrottningu. Hálffertug veltir Linda
því fyrir sér hvernig líf sitt hefði orðið ef hún hefði hætt við Lundúna-
ferðina, nítján ára, og „snúið sér að öðru en því að mæla manngildið í
fegurð.“10 Linda Pétursdóttir vinnur Miss World keppnina f7. nóvember
1988 og er fagnað eins og þjóðhöfðingja þegar hún kemur heim. Við
fáum að fylgjast með önnum köfnu og þrælskipulögðu ári effir keppnina
en svo kemur spennufall þegar því lýkur.
Sextán árum síðar hefur Linda unnið sem ljósmyndafyrirsæta og síðar
farsæl kaupsýslukona. Hún stofnar Baðhúsið, heilsulind fyrir konur, en þó
að fyrirtækið blómstri verður stofnandinn ofdrykkju að bráð og fer
þrisvar í áfengismeðferð. Hún hefur átt í stormasömum sambúðum við
marga menn en átakamest er samband hennar við Skotann Leslie
Robertsson sem þjáist af afbrýðissemi og gengur í skrokk á henni. Þegar
því sambandi lýkur er Linda brotin á sál og líkama. Hún byrjar að sækja
tíma hjá geðlækni en sekkur æ dýpra niður í sukk og sjálfstortímingu sem
endar á því að hún fer í meðferð hjá SÁÁ 1996. Undir áramót 1999 fellur
hún. Hún drekkur á laun og flækist inn í margs konar óþægilegar upp-
ákomur bæði í viðskiptum og karlamálum. Hún fer í nýja meðferð á Vogi
en finnst allir vera á móti sér og hringir í geðlækninn sinn sem segir að
hún eigi ekkert erindi í meðferð og með það fer Linda af staðnum. I
byrjun árs 2001 er enga hjálp að sækja í geðlækninn, kvíði vex og ótti, mis-
tök og sjálfsfyrirlitning vaxa. Hún gengur í Félag kvenna í atvinnurekstri
og verður formaður þar vorið 2001. Karlamálin taka hins vegar æ krapp-
ari dýfur og drykkjan er orðin nánast samfelldur túr með tilheyrandi
hneykslismálum. Effir tvær sjálfsmorðstilraunir fer Linda til Bandaríkj-
anna til Hazelden og kemur blindfull á meðferðarheimilið. Við fylgjumst
með meðferðinni þar, trúarlegri reynslu og viðkvæmni en líka staðföstum
vilja til að lifa í skjóli AA samtakanna og í samræmi við sporin tólf.
Linda stundar nú nám í grafískri hönnun í Kanada, Baðhúsið er rekið af
fjölskyldunni og Linda tekur þátt í ímyndarvinnu fyrir það. Einhvern tíma
ætlar hún að eignast barn og verði það dóttir ætlar hún ekki að banna
henni að fara í fegurðarsamkeppni en segja henni hvað það geti kostað.11
Ruth Reginalds
Ævisaga Ruthar Reginalds er skráð af Þórunni Hrefnu Sigurjónsdóttur.12
Ruth er fædd 1965. Faðir hennar er breskur og þau móðirin höfðu slitið
92
TMM 2004 • 2