Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Page 95

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Page 95
Mea culpa, mea maxima culpa ... sambandinu áður en Ruth fæðist. Hún er með móður sinni sem giftist á ný; hinn nýi faðir Ruthar er lögregluþjónn í Keflavík. í Keflavík elst Ruth upp og eignast tvær yngri systur, fjölskyldan býr um tíma í Bandaríkj- unum en sjö ára flytur Ruth aftur til Keflavíkur og byrjar í skóla. Æskuár hennar eru björt en átta ára gömul er hún uppgötvuð og syngur inn á fjórar plötur næstu árin, þar á meðal plöturnar tvær um Róbert bangsa sem komu út 1975 og voru elskaðar og kyrjaðar við raust af smábarna- foreldrum þeirra ára. Ruth verður barnastjarna, hún hefur mikla og fal- lega rödd og hljóðverið verður hennar annað heimili, þar líður henni vel með tónlistarfólkinu sem er ungt fólk sem hlúir að henni. Skólafélagarnir í grunnskólanum í Keflavík leggja hana hins vegar í einelti og sýna henni mikla grimmd. Tólf ára fer hún í tónleikaferðir með Brunaliðinu um landið um sumarið og syngur á sveitaböllum. Hún er smávaxin, grönn og barnaleg. Það sumar smakkar hún vín í fýrsta sinn. Eftir barnastjörnuárin kemur fallið, drykkjan færist í aukana og Ruth er í sambúð með manni sem leggur á hana hendur, nauðgar henni og nið- urlægir og brýtur hana niður andlega og líkamlega. Með honum eignast hún sitt fýrsta barn en slítur sambandinu og fer í meðferð áður en barnið verði tekið af henni. Þá er hún rúmlega tvítug. Við tekur tímabil sem ein- stæð móðir á framfæri borgarinnar, með vaxandi geðtruflanir eða þung- lyndi og anorexíu á háu stigi. Eftir tvær sjálfsmorðstilraunir rífur hún sig upp og um svipað leyti ákveður hún að leita róta sinna. Hún fínnur föður sinn og föðurömmu í Bretlandi og tekur upp samband við þau. Svo gift- ist hún og eignast tvær dætur með manni sínum en söngferillinn er hvorki beinn né breiður. Það er erfitt að koma aftur inn í bransa sem maður er dottinn úr og að lokum byggir Ruth upp nokkurs konar einyrkjafýrirtæki þar sem hún leikur og syngur fyrir dansi ásamt einum hljómborðsleikara. Hún er edrú í tólf ár en gerir ekki upp nein af sínum málum. Árið 2002 fer Ruth í þriðju meðferðina en þá er drykkjan búin að taka sinn toll, sambandinu við stjúpföðurinn endanlega lokið eftir fjárdráttar- ásakanir, hennar eigið hjónaband sprungið í loff upp, sjálfsvirðingin farin veg allrar veraldar og ekkert eftir nema tómið. í þetta sinn upp- götvar hún þó tólfspora kerfíð og byrjar að reyna að lifa eftir því. Sögumenn í sjálfsævisögunni fellur saman rödd höfundar, sögumanns og aðal- persónu. í ævisögunni er augljós munur á þeim höfundi sem skráður er fýrir sögunni og aðalpersónu hans. Þetta er ein af þversögnum bók- menntagreinarinnar segir Lisbeth Larsson, ævisagnaritarinn reynir að TMM 2004 • 2 93
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.