Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Blaðsíða 99

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Blaðsíða 99
Mea culpa, mea maxima culpa ... brosir helst aldrei. Hún er haldin af áráttum og þráhyggjum af öllum stærðum og gerðum. Þetta óhrjálega stúlkubarn skarar að vísu fram úr í námi en metnaðurinn er slíkur að það hættir frekar við verkin en að verða næstbest í þeim og þar af kemur, segir þriðji sögumaðurinn, að það hefur aldrei lokið við neitt og aldrei orðið best í neinu nema drykkj- unni. Hungur og þorsti litlu ljótu stúlkunnar eftir merkingu og tilgangi með lífinu fær hana til að hundelta móðurina með spurningum um upphafið og endinn og Guð og „das Ding an sich“ en án árangurs. Fað- irinn er fjarverandi, sjómaður, og ný börn fæðast, stóru systur til sárrar hrellingar og til þess eins að taka meira frá henni af móðurinni en orðið er. Tónninn í bernskuminningunum er svo þyrkingslegur og launfynd- inn, úrdrættirnir svo fíngerðir og sjálfsmeðaumkvun svo bönnuð að minnir á texta Málfríðar Einarsdóttur. En þarna glittir líka í Virginiu Woolf og Sylviu Plath; þegar ákvarðaður er innri texti þessarar sögu er erfítt að gera upp á milli hinna harmrænu háðfugla kvennabókmennta- sögunnar. í drykkjuköflunum er eins og þúsund púkum sé sleppt lausum. Ekk- ert tilefni er of lítið fyrir alkann til að breyta því í melódrama og drekkja sorgum sínum yfir því. En eins og sænski trúbadúrinn Cornelis Vrees- wijk ku hafa sagt: Aftur og aftur reyndi ég að drekkja sorgum mínum en uppgötvaði að þær kunnu að synda. Drykkjan fylgir kunnuglegu mynstri, frá helgardrykkju yfir í hálfa vik- una, yfir í nánast stöðugan túr með minnisleysi og mannlægingu sem lýst er án nokkurra skrauthvarfa. Linda Pétursdóttir og Ruth Reginalds segja sömu sögurnar en Linda Vilhjálmsdóttir heldur áfram þar sem þær hætta. Þar sem þær eru augljóslega að fegra sinn þátt með iðrun og sorg segir Linda Vilhjálmsdóttir hiklaust og hlutlægt frá því hvernig hún gengur yfir allt og alla á skítugum skónum. Hégómagirndin stjórnar viðhorfi hennar til lífsins vegna þess að hún telur sig betri en aðra menn. Að auki telur hún sig ekki háða öðru fólki og enginn hefur gert henni mein annar en hún sjálf. Hún er eins og Palli sem var einn í heiminum. Þó að fólk sé í kringum hana er hún einangruð til að hægt sé að horfa á hana og skoða hana í krók og kring. Þetta er stílfærð aðalpersóna að mínu mati. Þessi Linda er aldrei þolandi. Hún er alltaf gerandi frá barnæsku. Auk hroka, reiði og öfundar er græðgin sterkt afl í lífi og hugsun hinnar ákærðu. Hún drýgir hór og misnotar fæðuna af sama sjálfshatri og hinar stúlkurnar. Hún er sjúklega þunglynd og þá eru upptaldar höfuðsynd- irnar sjö en dyggðir fyrirfinnast engar. Af hverju elska menn hana? Af hverju hópast allt þetta góða fólk umhverfis hana og reynir að hjálpa henni í lengstu lög? Linda Pétursdóttir telur það sér til tekna að vera vinur TMM 2004 • 2 97
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.