Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Page 100

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Page 100
Dagný Kristjánsdóttir vina sinna. Ruth Reginalds elskar börn sín og mann en hvað elskar Linda Vilhjálmsdóttir? Hún er þakklát fólki fyrir að þola sig og hafa hjálpað sér en sjálfshatur hennar er of sterkt til að hún geti elskað fólk eða svo segir hún. Ef höfundur/söguhetja hefur aðeins skarað framúr í einu efni fram að bók þessari bætir hún hér við framúrskarandi upptroðslu í því að lýsa sér sem svo neikvæðri að það snýst í andstæðu sína. Textinn er fýndinn, grípandi og afar vel unninn. En er hann skáldsaga eða er hann ævisaga? Sú spurning hvílir á sannleikskröfu ævisögunnar. Persónuleg reynsla okkar, sekt eða sakleysi, er alltaf til bæði sem reynsla og huglægar minningar og hvort er „sannara“ þegar upp er staðið? Auð- vitað hlýtur sektin eða reynslan að fara á undan ákærunni því að ekki fara menn með fullu viti að ásaka sig um eitthvað sem þeir ekki hafa gert. Belgísk-bandaríski bókmenntafræðingurinn Paul de Man tekur franska máltækið „Að afsaka sig er að ásaka sig“ (qui s'excuse, s'accuse), snýr því við og segir að sá sem ásakar sig sé alltaf að taka afstöðu til ásökunar sem fyrir liggi. Um leið er höggstaður gefinn og afsökunin býður heim nýrri ásökun og svo framvegis. Afsökunin/ásökunin er þannig föst í fortíðinni og hún er ekki knúin áfram af sannleiksást heldur sýnihneigð, segir de Man. Því stærri sem glæpirnir eru þeim mun meiri fullnæging fylgi játningu eða afsökun og iðrunin eða sektin sem á eftir fer er afbragðs tækifæri eða skálkaskjól til að játa meira og ásaka/afsaka sig með tilheyrandi sjálfshirtingu. Paul de Man tengir þetta firringu mannsins í tungumálinu, klofningi okkar í því og baráttu sem gerir sjálft fyrirbærið „játningu“ svo vonlaust og sjálfs- ævisöguna svo sjálfkrafa að lygasögu.21 Málstaðurinn Fyrir jólin var talað um bækurnar þrjár sem hér hafa verið til umræðu sem SÁÁ-ævisögurnar og það er ef til vill minni brandari en mér fannst það vera þar og þá. Það liggur ljóst fyrir að bækurnar þrjár eru liður í þroskaferli kvennanna þriggja og þáttur í tólf spora kerfinu sem talar um að menn verði að rækta sál sína kerfisbundið til að þroska sig frá alkó- hólismanum og losa sig við það sem orsakaði hann til að byrja með. í sporunum tólf er gert ráð fyrir að menn trúi á hjálpræðið og noti þann styrk til að gera upp við fortíð sína, bæta fyrir hana þar sem það er hægt svo að menn geti öðlast skilning á ætlun guðs með okkur og styrk til að framkvæma þá ætlun. Tólfta sporið felur í sér óskina um að sá sem farið hefur í gegnum sporin ellefu fari út og færi öðrum alkóhólistum þá visku sem menn hafa unnið sér inn og geta því gefið öðrum. 98 TMM 2004 • 2
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.