Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Page 101

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Page 101
Mea culpa, mea maxima culpa ... Gail Unterberger er bandarískur sálusorgari, femínisti og óvirkur alko- hólisti sem hefur skrifað um tólf spora kerfið. Hún segir að sumir trú- lausir alkar eigi erfitt með að taka þann trúarlega boðskap sem felist í kerfinu gildan og sumir femínistar eigi erfitt með að sætta sig við það hve karlmiðað kerfið er. Fyrra atriðið hafi verið tekið alvarlega en það síðara ekki. Tólf spora kerfið byggi á sambandi manns og guðs sem kreþist full- kominnar undirgefni með vísun í samband föður og sonar í feðraveldi sem ekki er dregið í efa. Þessar reglur séu barn síns tíma (eins og dóms- málaráðherra myndi segja). Þetta séu líka valdaafstæður sem sé erfitt að kyngja fyrir konur sem hafi verið barðar til undirgefni og þurfi sjálfstyrk- ingu frekar en allt annað, hjálp og stuðning hópsins. í tólf spora kerfinu sé gert ráð fyrir einmana leit einstaklingsins að sáluhjálp sem lýkur með því að hann ríður inn í sólarlagið, og þó aðrir geri það líka er það ekki sameiginlegt ferðalag. Unterberger gagnrýnir innbyggða hugmyndafræði og valdaafstæður tólfsporakerfisins og endurritar sporin síðan út frá reynslu sinni af sálusorgun kvenna. Hún undirstrikar að hún sé tryggur stuðningsmaður AA samtakanna sem verði seint oflofuð og það sé ekki markmið sitt að hafna kerfinu heldur endurskoða það.22 Ég held ég hafi ekki lesið ævisögu karlmanns sem gengur jafn nærri sér og þær sögur sem hér hefur verið talað um og ég get ekki annað en spurt hvort falli hér saman í eins konar „mission impossible“ tvö ósamræman- leg markmið. Annars vegar sé hin persónulega sannleikskrafa tólf spora kerfisins sem líkist Rousseauhefðinni. Hins vegar er hin samfélagslega sannleikskrafa sem á rætur í trúarlegum bókmenntum og kennd hefur verið við Ágústínus. Þar er sögð saga til viðvörunar og eftirbreytni fyrir fjöldann svo að hann megi sjá ljósið. Hvaða Ijós? Á dögum Rauðsokka- hreyfingarinnar var það ljós kvenfrelsisins. Góð játningabók átti að enda á því að söguhetjan bryti af sér hlekki karlveldisins. Þó að játningabækur tuttugustu og fyrstu aldarinnar þekki þessa stóru frásögn kvennahreyf- ingarinnar trúa þær að því er virðist ekki á hana. Söguhetjurnar skoða sig sem einstaklinga, ekki hluta af sögulegri hreyfingu, en ef til vill eru þær það engu að síður. Allar konurnar þrjár skara fram úr, hver á sínu sviði, allar trúa þær innst inni að þær séu framúrskarandi og það er kjarninn í þeirra per- sónulegu sögu. Þær gefa dauðann og djöfulinn í hefðbundin kvenhlut- verk og kyngervi. Og þær reka sig á vegg. Sögur þeirra segja frá reiði, geð- veiki, fíkn og ósjálfstæði. Fyrir þetta eru þær samfélagslega fordæmdar og vita það en kjósa samt að stíga fram og segja sannleikann. En hann er ekki „samfélagsvænn". Bækur Lindu Pétursdóttur og Ruthar enda á sátt og aðlögun og bók Lindu Vilhjálms endar í Skálholtskirkju baðaðri í TMM 2004 • 2 99
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.