Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Blaðsíða 105
Menningarvettvangurinn
Matthías Viðar Sæmundsson.
Svava Jakobsdóttir.
umst. Ég sé mikið eftir að hafa látið undan honum, því jafhvel stutt spjall hefði
verið miklu betra en ekkert. Því verður þó ekki breytt héðan af.
Mér er minnisstætt þegar Matthías kom í fyrsta tímann til mín í 20. aldar bók-
menntum við Háskóla íslands í janúar 1978, þá nýkominn frá námi í Frakklandi.
Hann steig inn fyrir þröskuldinn, hár og grannur, suðrænn yfirlitum og svart-
klæddur - í minningunni er hann svartur frá hvirfli til ilja og svo glæsilegur að
allur fimmtíu manna bekkurinn tók andköf, stelpurnar, strákarnir og kennarinn
líka. Hann var líka dýrmætur nemandi þetta vormisseri, fus til að deila með
okkur fávísum öllu því nýja og nýstárlega sem hann hafði lært suður í Frakk-
landi. Ég fullyrði að sjaldan hafi annar eins nemendahópur verið saman kominn
í einni stofu í Háskóla íslands og þessi stóri bekkur, og Matthías var sannarlega
ein skærasta stjarna hans. Prófritgerð hans um vorið var líklega fyrsta alvarlega
bókmenntagreinin sem birtist á prenti eftir hann, hún hét Jóhann Sigurjónsson
og módernisminn og birtist í þessu tímariti, 3. hefti 1979. Á næstu árum og ára-
tugum var hann mikilvirkur rannsakandi íslenskra bókmennta á síðari öldum í
bókum, greinum og kennslu, þar sem hann sýndi sama örlæti og sem nemandi.
Einnig fékk hann á seinni árum djúpan áhuga á rúnum og galdri sem birtu
honum lítt kannaða kima mannshugans. Meðal annars gaf hann út bókina
Galdur á brennuöld (1996) og greinaflokk í Lesbók Morgunblaðsins (2003-4)
sem lauk rétt áður en hann lést. Matthíasar er og verður sárt saknað.
JPV útgáfa gefur út í sumar greinasafn til heiðurs Matthíasi undir ritstjórn
Eiríks Guðmundssonar og Þrastar Helgasonar. Einnig er JPV útgáfa með í und-
irbúningi bók með erindum sem flutt voru á Svövuþingi fyrir fáeinum árum. Sú
bók er væntanleg með haustinu. Það er þakkarvert að forlagið skuli minnast
þessara velgjörðarmanna íslenskra bókmennta svona myndarlega.
TMM 2004 • 2
103