Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Side 106
Menningarvettvangurinn
Sumarlesning
Talandi um bækur þá hafa komið út á undanförnum vikum allmargar bækur til
að njóta í sumar. Meðal þeirra eru endurútgáfur á góðum bókum í kiljum og
má þar nefna sérstaklega þá dýrlegu bók LoveStar eftir Andra Snæ Magnason
sem fyrst kom út 2002, hlaut Menningarverðlaun DV í bókmenntum, var
kjörin skáldsaga ársins af bóksölum og tilnefnd til íslensku bókmenntaverð-
launanna. LoveStar kemur út hjá Máli og menningu sem líka endurútgefur Líf-
lœkninn eftir Per Olov Enquist, hina umdeildu Höfund íslands eftir Hallgrím
Helgason sem hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin í hittifyrra og báðar bækur
Einars Kárasonar um Killiansfólkið í endurskoðaðri útgáfu í einu bindi. Frá
Bjarti berst aftur hinn margumræddi Da Vincy lykill eftir Dan Brown. JPV út-
gáfa endurútgefur í kilju m.a. bækurnar Leggðu rœkt við ástina eftir Önnu
Valdimarsdóttur, Öxina og jörðina eftir Ólaf Gunnarsson sem hlaut íslensku
bókmenntaverðlaunin í ár, Einhvers konar ég eftir Þráin Bertelsson, Dœtur Kína
eftir Xinran og Svo fögur bein eftir Alice Sebold. Vaka-Helgafell gefur m.a. út í
kilju síðasta smell Arnalds Indriðasonar, Bettý, sem engin leið er að skrifa fræði-
legan ritdóm um án þess að koma upp um of mikið. Það verður að bíða þangað
til hún fer af metsölulistum.
Sérstaklega verður að geta endurútgáfu Vöku-Helgafells á þremur skáldsögum
Indriða G. Þorsteinssonar (föður Arnalds spennuspútniks) í einni kilju undir
samheitinu Tímar í lífi þjóðar. Þetta er þríleikurinn Land ogsynir, Norðan við stríð
og 79 afstöðinni sem saman mynda samfellu þar sem sagt er frá róttækustu sam-
félagsbreytingum í sögu íslendinga í kjölfar kreppu, hernáms og breyttra at-
vinnuhátta. Þetta eru klassískar sögur sem fengur er að fá aftur á prent.
Meðal frumútgefinna bóka hjá JPV verður ensk þýðing Hallbergs Hallmunds-
sonar á metsölubókinni Einhvers konar ég eftir Þráin Bertelsson, sérstaklega
ætluð erlendum ferðamönnum. Einnig gefur JPV út bók um Skaftafell eftir Dan-
íel Bergmann, umtalaða bók um Kárahnjúka eftir Ómar Ragnarsson og nýja úti-
vistarhandbók eftir Pál Ásgeir Ásgeirsson, höfund Hálendishandbókarinnar vin-
sælu sem verður endurútgefm fyrir sumarið. Nýja bókin er handhæg og ætluð
allri íjölskyldunni, ekki síst ungu fólki sem er að fara sínar fýrstu fjallaferðir. Þar
verða allar upplýsingar um útbúnað og nesti til langra og stuttra ferðalaga, alveg
niður í smæstu smáatriði.
Reyndir jafnt sem óreyndir ferðamenn verða ekki í vandræðum með leiðbein-
ingar því Mál og menning gefur út bókina íslensk jjöll - gönguleiðir á 151 fjall
eftir Ara Trausta Guðmundsson og Pétur Þorleifsson. Þetta er endurskoðuð og
aukin útgáfa bókarinnar Fólk á fjöllum. Og Almenna bókafélagið gefur út
Gengið um óbyggðir eftir Jón Gauta Jónsson þar sem eru aðgengilegar
upplýsingar í máli og myndum um flest það sem nauðsynlegt er að kunna skil á
þegar ferðast er um óbyggðirnar. Hvernig á að undirbúa sig og hvernig á að rata?
Bjartur gefur út bækur á þessu vori bæði í neon-röðinni og svörtu línunni.
Neon er einkum ætluð undir erlend skáldverk sem mikla athygli hafa vakið í
heimalandinu og þær nýjustu eru Blikkkóngarnir eftir Magnus Mills sem hingað
104
TMM 2004 • 2