Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Qupperneq 113

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2004, Qupperneq 113
Bókmenntir stóð í svipuðum sporum og lauk lífinu í snjóflóði, séra Brands í samnefndu leik- riti Ibsens, en honum varð á að gleyma gildi kærleikans líkt og kolleganum Baldri og þurfti því á áminningu að halda í lokin um að Drottinn sé Deus carita- tis. Munurinn er þó sá að okkar maður virðist ekki láta lífið í snjóflóðinu heldur fara þá undankomuleið sem gefin er í skyn með tilvitnun í Hambrigði Óvíds Rómarskálds um að allt breytist en ekkert farist: Omnia mutantur, nihil interit og myndar þar heimspekilegan grundvöll sagna um hamskipti manna og dýra. Vissulega minna afdrif séra Baldurs á það sem segir í fyrrnefndu verki Óvíds um afdrif Lýkaons konungs, þess er breyttist í úlf sakir grimmdar sinnar, því að mörkin milli tófu og manns hafa hér farið æ minnkandi eftir því sem á leið sög- una, þar sem maðurinn verður æ dýrslegri að sama skapi og tófan fær mál sem oft er talið höfuðeinkenni mennskra manna. Svo vill til að þessi setning er einnig tilfærð í nýlegri skáldsögu eftir Christoph Ransmayr sem ber á íslensku heitið Hinsti heimur (1989) og rekur spor Hambrigðaskáldsins Óvíds um útlegðarstað hans í borginni Tómí við Svartahaf, en þar er hún sett fram sem kenningar spekingsins Pýþagórasar um endurhold- gun og sálnaflakk og hljómar svo: „Allt breytist, ekkert ferst, andinn reikar stöðugt hingað og þangað, tekur sér bólfestu í alls konar limum, bregður sér úr dýri í mann og þaðan aftur í dýrslíki og tortímist aldrei....“ Hér eru á ferðinni hliðstæður, því að umhverfi séra Baldurs Skuggasonar er, þegar allt kemur til alls, „hinsti heimur“ eða eins og segir í sögu Sjóns „á mörkum „hinns (sic) byggi- lega heims“ alveg eins og Svartahafsströnd um Kristsburð, og því tilvalinn vett- vangur fyrir viðureign eða samruna manns og náttúru, en munurinn sá að við Svartahafið er það villtur trjágróður sem tekur völdin, en hér er það hvítur snjórinn, ímynd dauðans hjá sumum íslenskum skáldum, sem umlykur allt. Bókin Skugga-Baldur opnar víddir sem áhugavert er að skoða, og líkt og í fyrri verkum sýnir höfundurinn Sjón það hugarflug, hugkvæmni og dirfsku sem ein- kenna hann umfram flesta aðra og hann hefur kannski í fyrri bókum á stundum gefið of lausan tauminn. Hér eru vinnubrögðin agaðri og markvissari en áður með þeim árangri að flest það sem kann að prýða eina sögu nær að njóta sín: bygging hennar hnitmiðuð og hlaðin spennu, orðfærið tært og vandað, frásagn- arstíllinn ljóðrænn og fullur af ísmeygilegri kímni og lýsing persóna og atvika ljóslifandi og jafnt gædd áþreifanleika sem almennri skírskotun. Þetta er því bók sem hefur klassísk einkenni í fleiri en einum skilningi og til þess fallin að veita varanlega ánægju hvernig sem á hana er litið, og það gildir ekki síður um kápu- teikninguna utan á eftir Benedikt Sveinbjarnarson Gröndal sem bæði gleður sem slík og hæfir bókinni vel. TMM 2004 • 2 111
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.