Heimsmynd - 01.08.1994, Page 100

Heimsmynd - 01.08.1994, Page 100
Fyrir tæpum tuttugu árum þekktu einungis þeir sem höfðu forframast er- lendis sojasósu og hrísgijón voru aðallega notuð í mjólkurgraut. En þetta hefur svo sannarlega breyst. Nú þykir enginn maður með mönnum nerna hann kunni að elda austurlenskan mat og hrísgrjón eru farin að ógna kartöflunum sem svo lengi voru vinsælasta meðlætið hér á landi. Sá sem átti mestan þátt í að kenna Islendingum að meta aust- urlenskan mat er Gilbert Yok Peck Khoo sem opnaði íýrsta kín- verska veitingahúsið hér á landi, Sjanghæ, og hefttr um árabil selt vörur sem gera almenningi kleift að elda austurlenskan mat, fyrst í versluninni Manilla en nú í Kryddkofanum. Gilberterfædd- ur og uppalinn í Malasíu en af kínverskum ættum. Hann bytjaði snemma að ferðast og segist alltaf hafa verið mikill ævintýramaður. Þegar hann heyrði í fyrsta skipti talað um Island bjó hann í Sviss. Hann þekkú tvo Kínverja frá Mal- asíu sem unnu á Islandi og ákvað að heimsækja þá og skoða þetta forvitnilega land árið 1975. Þegar flugvélin lenti á Keflavíkurflug- velli brá honum í brún, hvers konar land var þetta eiginlega, auðn og grót. Hvar voru húsin og gróðurinn. Hann var þó fljótur að jafna sig á undruninni og í þá tvo mánuði sem hann dvaldi hér leist honum stöðugt betur á land- ið. Tveir mánuðir eru fljótir að líða og Gilbert fannst hann ekki hafa kynnst landi og þjóð nógu vel þannig að honum datt í hug að reyna að búa á íslandi í tvö eða þijú ár. Hingað flutti hann árið 1978 og var í Háskóla Islands í tvo vetur. Orlögin tóku í taumana og Gilbert kynnúst núverandi eigin- konu sirnii, Hildi Amardóttur, og setúst hér að. Nú segist hann vera orðin 90 prósent Islendingur sem vinnur mikið og heima hjá þeim sé einungis íslenskur matur á borðum. Hangikjöt og súrmatur eru í miklu uppáhaldi lijá hjá Gil- bert sem segist annars borða all- an íslenskan mat með góðri lysL Verslaxtir og' veitingahús Versluninni Manilla muna sjálf- sagt margir eftir vegna þess hve Á Sjanghæ er nú boðið upp á hlaðborð bæði í hádegi og á kvöldin. i framandi hún var. Gilbert hóf rekstur hennar áiið 1983 og seldi núðlur, austurlenskar sósur, krydd og fleira. I fyrstu voru viðskiptavin- ., irnir nær eingöngu Asíubúar bú- setúr á Islandi. Tveimur árum síð- ar færði Gilbert út kvíarnar og opnaði veitingastaðinn Sjanghæ sem hann rekur enn þann dag í dag. Fyrstu tvö árin var veitinga- staðurinn í kjallara húss númer 28a við Laugaveg en síðan flutti hann í næsta hús, Laugaveg 28b. Gilbert hætú verslunarrekstrinum árið 1986 vegna þess að Sjanghæ tók allan hans tíma. I fyrstu sá hann sjálfur um eldamennskuna en undanfarin ár hafttr hann feng- ið úl sín íjölda gestakokka frá Kína. Flestir hafa komið frá Peking, Sjanghæ og Szechuan. Að sögn Gilberts kunna íslendingar vel að meta kínverskan mat og eru opnir fyrir nýjungum. Fyrst í stað þurfti hann að þó að laga matreiðsluna að íslenskum smekk. Lengi vel vildu Islendingar aðallega borða súrsæta rétti en nú segist Gilbert vera að reyna að kenna þeim að borða fleira, til dæmis mikið kryddaðan mat. Hann segir að það gangi vel og nú sé ekta kín- verskur matur á borðum Sjanghæ. Kínversk matreiðsla er mjög mis- jöfn eftir því hvaðan áhrifin eru sótt. Aveitingastaðnum Sjanhæ hefur aðallega verið eldað sam- kværnt Kantón-hefð, en Kantón- eldhús er mjög vinsælt víða í Evr- ópu og Bandaríkjunum. Það ein- kennist af bragðmiklum mat, afar fjölbreyttum, og mikil áhersla er lögð á sjávarrétti. Súrsætir réttir eru ríkjandi. Onnur stefna sem farið hefúr verið efúr á Sjanghæ er eldhús sem kennt er við Peking. I Peking hafa matreiðsluaðferðir fiæ fjölda héraða í Kína mæst en það sem einkennir Peking-eldhús öðru fremur er frekar mildur og bragðlíúll matur. Undanfarið hef- ur þriðja stefnan sótt á en hún er kennd við Szechuan. Gilbert segir að Szechuan-eldhús sé mjög vin- sælt í Kína en það er eins og Kant- ón-eldhús þekkt fyrir fjölbreytni. Maturinn er hins vegar miklu bragðmeiri, enda chilipipar mikið notaður. Islendingar voru svo hrifnir af kín- verskum mat að árið 1989 réðst Gilbert í að standsetja annan kín- verskan veitingastað í félagi við ÍOO) Sælkerinn / Heimsmynd - ágúst / september
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.