Skessuhorn


Skessuhorn - 18.12.2019, Side 8

Skessuhorn - 18.12.2019, Side 8
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 20198 Grunsamlegir í Garðavík BORGARNES: Tilkynnt var um grunsamlegar mannaferð- ir í Garðavík í Borgarnesi um hálf níu leytið á fimmtudags- kvöld. Foreldri hafði samband við neyðarlínu vegna þess að dóttir hennar tjáði henni að maður hefði verið að elta hana. Hún ávarpaði mannninn sem svaraði henni ekki og við það varð stúlkan hrædd. Maðurinn fór síðan inn í rauðan bíl, þar sem voru fyrir tveir karlmenn og fleiri. Allir sem stúlkan sá voru d ökkklæddir og ekki ungir menn, að sögn lögreglu. Tilkynnandi vildi meina að á sama tíma í fyrra hefði verið brotist inn í heimahús á svip- uðum slóðum, á meðan tón- leikar stóðu yfir í bænum eins og einmitt þetta kvöld. Eftir- grennslan lögreglu bar ekki árangur. -kgk Skóf ekki rúðuna AKRANES: Lögreglan hefur haft afskipti af ökumönnum í vikunni sem hafa trassað að skafa framrúður bifreiða sinna nægilega vel áður en ekið er af stað. Einn slíkur var stöðv- aður á Akranesi síðastliðinn laugaradag og var sektaður um 20 þúsund krónur fyrir vikið. Maðurinn viðurkenndi brot sitt en var frekar ósáttur við störf lögreglu. -kgk Lenti í skafli GRUNDARFJ: Umferð- aróhapp varð við Fellsenda á norðanverðu Snæfellsnesi um kl. 16:00 á fimmdudag. Öku- maður missti stjórn á bifreið sinni þegar hann lenti í snjó- skafli. Engin slys urðu á fólki en bifreiðin skemmdist að framan og er óökuhæf eftir óhappið. -kgk Sveitarstjóri Borgarbyggðar Borgarbyggð er landstórt sveitarfélag með um 4000 íbúa og 6 þéttbýliskjarna sem eru Borgarnes, Hvanneyri, Bifröst, Kleppjárnsreykir, Varmaland og Reykholt. Þar er öflugt skólasamfélag með 5 leikskólum, 2 grunnskólum, menntaskóla og 2 háskólum. Hjá sveitarfélaginu starfa um 300 manns og einkunnarorð þess eru: Menntun, saga, menning. Nánari upplýsingar um sveitarfélagið má finna á www.borgarbyggd.is. Nánari upplýsingar veita Þórður S. Óskarsson (thordur@intellecta.is) og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511-1225. Umsóknarfrestur er til og með 28. des. 2019. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og henni þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Menntunar- og hæfniskröfur:Helstu viðfangsefni og ábyrgð: Intellecta, Síðumúli 5, 108 Reykjavík, sími 511 1225. Öfugu megin AKRANES: Lögregla kom fram athugasemdum við tölu- vert marga ökumenn sem lagt höfðu bíl sínum á móti akst- ursstefnu í síðustu viku, eink- um á Akranesi. Þar skildu lög- reglumenn miða eftir á fram- rúðum bifreiða með þeim til- mælum til ökumanna að fara að umferðarlögum og stuðla að greiðari og öruggari umferð. Lögregla minnir á að óheim- ilt er að leggja á móti aksturs- stefnu. Ástæðan er sú að þegar bifreið er lagt á móti aksturs- stefnu þá sér ökumaðurinn ekki út í umferðina. Ef lagt er réttu megin þá sér ökumaður strax út í umferðina. Af sömu ástæð- um eru bílar með stýrið vinstra megin í þeim löndum þar sem ekið er á hægri vegarhelmingn- um, til að ökumaður hafi sem besta yfirsýn yfir akbraut og út í umferðina. -kgk Heilahristingur BORGARNES: Slys varð í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi á föstudagskvöld. Unglings- piltur lenti í samstuði við mót- herja í íþróttaleik, féll í gólfið og fékk högg á höfuðið. Reynd- ist hann hafa hlotið heilahrist- ing af og komið með sjúkrabíl undir læknishendur. -kgk Erlendur án réttinda VESTURLAND: Við eftir- lit með umferð í vikunni sem leið stöðvaði Lögreglan á Vest- urlandi för erlends ökumanns í umdæminu. Nokkurra tungu- málaörðugleika gætti í sam- skiptum við ökumanninn, að sögn lögreglu. Gat hann ekki sýnt fram á að hann hefði gild ökuréttindi og fékk hann því ekki að halda för sinni áfram. -kgk Fjárhagsáætlun Borgarbyggðar var samþykkt með fimm atkvæðum eftir seinni umræðu í sveitarstjórn síðast- liðinn fimmtudag, sem og þriggja ára áætlun. Fulltrú- ar Framsóknarflokks sátu hjá þegar greidd voru atkvæði um áætlunina í heild sinni. Tekjur A og B hluta eru áætl- aðar 4.591 milljónir króna á næsta ári en rekstrargjöld A og B hluta, án fjármagnsliða, 4.293 milljónir. Áætl- að er að fjármagnsliðir verði 114 milljónir og rekstrar- niðurstaða samstæðunnar því jákvæð um 183 milljónir á næsta ári. Áætlað er að fjárfestingar og framkvæmd- ir A og B hluta sveitarsjóðs á næsta ári nemi 654 millj- ónum króna. Álagninig fasteignaskatts í A flokki verður 0,36% og lækkar úr 0,4%. Í B flokki verður hún 1,32% og 1,39% í C flokki. Lóðaleiga verður 1,5% af fasteignamati íbúð- arhúsalóða og 2,0% af mati annarra lóða. Áfram verður 50% afsláttur af gatnagerðargjöldum og 100% afsláttur af lóðagjöldum árið 2020. Við fyrri umræðu um fjár- hagsáætlun hafði verið samþykkt að álagningarhlutfall útsvars í Borgarbyggð yrði 14,52% af tekjum, sem er há- marksútsvar og gjaldskrár verða ekki hækkaðar umfram 2,5% eins og lagt var til í lífskjarasamningunum svoköll- uðu. Dvalargjöld hækka ekki í gjaldskrám leikskólanna. Engin framtíðarsýn Fulltrúar Framsóknar lögðu fram bókun þar sem þeir sögðu meirihlutann á yfirstandandi kjörtímabili ekki hafa neina framtíðarsýn og sóa tekjum sveitarfélagsins. Fyrirtækjum hefði ekki fjölgað í sveitarfélaginu og lít- ið eða ekkert af íbúðum og húsnæði væri í byggingu. „Á meðan engin sýn er til staðar og engin geta til þess að leiða verkefni áfram og klára dæmið munum við fylgj- ast með tekjum sveitarfélagsins ausið stefnulaust,“ seg- ir í bókuninni. „Það er lykilatriði að skýr framtíðarsýn liggi fyrir til grundvallar ákvörðunum með heildarhags- muni íbúa að leiðarljósi. Meirihlutinn getur ekki leng- ur komist hjá því að upplýsa íbúa um sameiginlega sýn sína á fjölmörg ókláruð mál. Raunverulegur fjárhagsleg- ur og samfélagslegur ávinningur fyrir íbúa helgast af því að sveitarstjórn geti lagt fram framsækna framtíðarsýn,“ segir í bókun Framsóknarmanna sem kölluðu eftir því að slík sýn yrði lögð fram eigi síðar en 1. mars á næsta ári. Skýr stefna Fulltrúar meirihlutans lögðu fram bókun þar sem þeir sögðu ánægjulegt að starfa í þágu sveitarfélags þeg- ar fjárhagurinn væri sterkur og vel gengi. Engu að síð- ur væri mikilvægt að gæta vel að jafnvægi milli fram- kvæmda, þjónustu og fjármuna. „Það má ekki safnast upp mikil framkvæmdaþörf eða ganga of nærri skerð- ingu þjónustu við íbúa en heldur ekki ganga of nærri fjárhag sveitarfélagsins við framkvæmdir. Það þarf að finna eðlilegt jafnvægi milli þessara þátta. Ljóst er að mikil framkvæmdaþörf var komin víðs vegar í sveitarfé- laginu og því þurfti að láta hendur standa fram úr erm- um en bæði sú fjárhagsáætlun sem lögð var fram árið 2019 og sú sem lögð er fram hér í dag bera þess merki. Samhliða þessu var þó gætt að aðhaldi í rekstri og leitast við að bæta þjónustu við íbúa,“ segir í bókun meirihlut- ans, sem þvertók fyrir að ekki hefði verið lögð fram nein framtíðarsýn. „Sú fjárhagsáætlun sem lögð er fram hér í dag varpar með skýrum hætti ljósi á þá stefnu sem meiri- hlutinn hefur markað í samstarfi við starfsmenn sveitar- félagsins. Styður hún þá sýn að hér verði öflugt, fjöl- skylduvænt samfélag sem hugar vel að öllum aldurshóp- um og fyrirtækjum í sveitarfélaginu.“ kgk Spá afgangi frá rekstrinum Tekist á um fjárhagsáætlun Borgarbyggðar

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.