Skessuhorn - 18.12.2019, Blaðsíða 83
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2019 83
Jólamót Ungmennafélagsins Vík-
ings/Reynis fór fram í sundlaug
Snæfellsbæjar miðvikudaginn 11.
desember. Mótið að þessu sinni var
ætlað iðkendum á grunnskólaaldri
og var það vel sótt. 29 börn af þeim
32 sem æfa sund tóku þátt í mótinu.
Keppt var bæði í skriðsundi og boð-
sundi. Mótið gekk mjög vel fyrir sig
og stóðu krakkarnir sig vel. Mátti
sjá sundmenn framtíðarinnar og
halda þeir vonandi áfram að æfa og
bæta sig. Að móti loknu fengu all-
ir þátttakendur verðlaun og endaði
mótið á því að boðið var uppá kakó
og piparkökur þa
Jólamót Víkings
í sundi
Þetta máltæki; „Þá mega jólin koma fyrir
mér,“ er gjarnan notað yfir athafnir sem
fólki finnst nauðsynlegar í aðdraganda
jóla. Byggir á hefðum og venjum viðkom-
andi og getur verið afar persónubund-
ið eða tengt fjölskyldum. Við heyrðum í
nokkrum íbúum á Vesturlandi og spurð-
um þessarar spurningar; hvað er nauðsyn-
legt að gera í aðdraganda jóla?
Árnína Lena Rúnarsdóttir,
Borgarnesi.
Austur til ömmu og afa
„Þegar ég er komin í jólafrí frá vinnunni og
komin austur á Neskaupstað til ömmu og afa,
þá mega jólin koma.“
Martha Lind Róbertsdóttir,
Akranesi.
„Ó guð lyktin, hún er
dásamleg!“
„Jóla undirbúningurinn hjá mér felst að
mestu í að skreyta en er breytilegur frá ári
til árs. Stundum þríf ég inni í öllum skápum
og baka, en stundum geri ég það ekki og það
koma samt jól. Það er mikilvægt að gera eitt-
hvað með börnunum og leyfa þeim að taka
þátt. Ég þykist ekki vera vanaföst en ég er það
samt hvað varðar aðfangadag. Ég legg extra
fallega á borð og eyði mestum hluta af deg-
inum í eldhúsinu. Andrúmsloftið er mjög af-
slappað og krakkarnir fá að hjálpa. Jólailm-
urinn minn er þegar ég steiki sætar kart-
öflur með engifer og vorlauk og helli yfir það
rjóma. Lyktin, ó guð lyktin, hún er dásam-
legt! Mín fasta hefð er að fara í kirkju, ég er
alin upp við það og mér finnst erfitt að sjá
fyrir mér aðfangadagskvöld án þess. Það er
dásamlegt að koma heim úr kirkju, borða
góðan mat og eiga dýrmæta stund með fjöl-
skyldunni.“
Genalyn Dela Cruz, Borgarnesi.
Stórfjölskyldan saman
„Jólin verða öðruvísi í ár. Ég fer loksins heim
til Filippseyja yfir jólin en ég hef ekki farið
síðan 2014 svo ég er mjög spennt. Jólahefð-
in á Filippseyjum er nokkuð svipuð jólunum
á Íslandi. Við stórfjölskyldan, yfir 50 manns,
borðum góðan mat á aðfangadag og opnum
svo pakkana þegar búið er að ganga frá matn-
um.“
Friðrik Örn Eyjólfsson, Tröð
Kolbeinsstaðarhreppi.
Jólatréið fer upp
„Það var hefð í gamla daga að skera út laufa-
brauð en maður er lítið í því núna. Við setjum
allavega upp jólatréð.“
Úlfar Guðbrandsson,
Staðarhrauni.
Fær sér alltaf skötu
Ég myndi segja að það væri nauðsynlegt að
fá sér skötu á Þorláksmessu.
Þórhildur María Kristinsdóttir,
Litla-Bergi í Reykholtsdal.
Engin jól án skötuveislu
Það koma engin jól nema fá vel kæsna skötu.
Tómas Freyr Kristjánsson,
Grundarfirði.
Ýmislegt gert í aðdrag-
anda jóla
Er jólin nálgast og aðventan byrjar með til-
heyrandi jólastressi þá eru nokkur atriði sem
standa uppúr og þykja ómissandi hjá okk-
ur í fjölskyldunni. Síðustu ár hafa jólatón-
leikar Baggalúts verið hluti af aðventunni
enda afskaplega fjörugir og skemmtileg-
ir. Laufabrauðsútskurður heima hjá tengda-
mömmu þykir tilhlökkunarefni hjá flestum
fjölskyldumeðlimum þó að undirritaður sé
mest í smökkunardeildinni. Það sama á við
um sörugerð en þar sé ég yfirleitt um gæða-
eftirlit. Einnig er nokkrum hefðbundnum
jólakvikmyndum gerð skil eins og Christmas
Vacation, Home Alone, Grinch og Die Hard
svo eitthvað sé nefnt. Sex ára dóttir mín held-
ur okkur svo við efnið er kemur að jólaskreyt-
ingum og komu jólasveinsins.
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson,
Sumarhúsum í Borgarfirði.
Þristur fyrir jólin
„Mér finnst nauðsynlegt að skóla Davíð
bróðir til í körfubolta fyrir jólin. Setja jóla-
þrist í andlitið á honum.“
„Þá mega jólin koma fyrir mér“