Skessuhorn - 18.12.2019, Blaðsíða 57
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2019 57
fær gesturinn að sjá ferlið frá upp-
hafi til enda. Ég ætla að vera með
fræðslufyrirlestra fyrir ferðamenn
á ensku á kvöldin í sumar en það
vantar mjög afþreyingu fyrir ferða-
menn á kvöldin á Selfossi og í ná-
grenni. Ég hef betri aðstöðu til að
halda námskeið og verð með góða
setustofu þar sem hægt er að halda
viðburði hér í samfélaginu eins og
kvæðamannakvöld, prjónakvöld og
allskonar fræðslukvöld og nám-
skeið. Ég er til dæmis mjög spennt
fyrir Júróvision-prjónakvöldi. Ég
hef einnig hugmyndir um gras-
nytjatengda minjagripi sem ég fer
ekki nánar út í. Einnig býður húsa-
kosturinn upp á möguleika til að
bjóða upp á gistingu t.d. í hesthús-
inu sem fylgir með en þá yrði ég
með gistingu í hestastíum,“ segir
Guðrún og brosir.
Að auki ætlar Guðrún að vera í
samstarfi við Þingborg og Upp-
spuna sem eru að vinna með ís-
lenska ull en ætlunin er að vera
með „The Woolen Cirlce“ eða
ullarhringinn sem yrði þá hliðar
hringur við hinn fjölfarna Gullna
hring. „Þannig verður hægt að fara
Gullna hringinn með handverks-
þema. Við verðum með heimasíðu
og bækling og ég er mjög spennt
fyrir þessu verkefni,“ segir Guðrún
en tilgangurinn segir hún auðvitað
vera að hafa lifibrauð af handverki
og fræðslu. „Það er basl á meðan
handverk á Íslandi ber 24% virðis-
auka,“ bætir hún við.
Kveður
Borgarfjörð þakklát
Nú þegar Guðrún er flutt á Suð-
urlandið spyr blaðamaður hvers
hún eigi nú eftir að sakna mest úr
Borgarfirði. „Borgfirðinga, Hvann-
eyringa, Landbúnaðarháskólans,
Landbúnaðarsafnsins, Söluskála
Sólbyrgis, Safnahússins, Ullarsels-
ins, hádegisverðarhlaðborðsins á
Landnámssetrinu og útsýnisins úr
Árnesinu og svo mætti lengi telja.
Ég veit hvað ég hef í Borgarfirði og
hef kunnað að meta þann stuðning
sem ég hef fengið og þá yndislegu
vini sem ég á þar. Ég trúi því og
treysti að Sunnlendingar taki mér
vel og að ég muni eignast vini hér
og læra að þekkja svæðið og samfé-
lagið,“ svarar hún.
Guðrún segir það líka erfitt að
fara frá Landbúnaðarháskólan-
um þar sem skólinn hefur sinnt
henni vel í sinni kennslu og fræð-
um, en þar hefur hún kennt grasa-
fræði og mun nú kenna á nýju ári
með nýrri útfærslu. Svo er aldrei að
vita nema hún gefi út aðra bók en
á síðasta ári gaf Guðrún út bókina,
Grasnytjar á Íslandi, og segist vera
með hugmyndir að minnsta kosti
þremur bókum í hausnum á sér en
að svo stöddu ætli hún að einbeita
sér að fyrirlestrunum og fræðslu-
minjagripunum. „Ég vil nota tæki-
færið og þakka Borgfirðingum og
sérstaklega Hvanneyringum fyrir
alla aðstoð, stuðning og hvatningu
síðustu 16 ár. Það var mjög erf-
ið ákvörðun að fara úr svona góðu
samfélagi og umhverfi. Það er svo
skylda að koma við hjá mér í nýju
Hespuhúsi í Ölfusinu svo ég fá ekki
of mikla heimþrá. Ég stefni að því
að hafa opnunarhóf á sumardaginn
fyrsta og vonast til að sjá sem flesta
úr Borgarfirði þá,“ segir Guðrún að
lokum.
glh. Ljósm. aðsendar.
Guðrún hefur sett upp bráðabirgðaaðstöðu til að taka á móti gestum í nýja Hespuhúsinu. Fyrsti hópurinn í nýja Hespuhúsið var Kvenfélag úr Skaftafellssýslu.
Sendum öllum félagsmönnum og
ölskyldum þeirra hugheilar óskir um
gleðilega hátíð og farsæld á komandi ári.
Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða.
Stjórn SDS
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
4
Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu
Sendum æingjum
okkar og vinum bestu
jóla- og nýárskveðjur.
Þökkum góðar
stundir.
Gurrý og Diddi
Kveðjur til ættingja og vina
Snæfellsbær sendir lesendum Skessuhorns
og öðrum Vestlendingum hugheilar jólakveðjur
með ósk um farsæld á nýju ári.
Þökkum samskiptin á árinu sem er að líða.
Gleðilega hátíð !
Við Bjarnarfoss í Staðarsveit