Skessuhorn - 18.12.2019, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 201920
Eldum rétt er núna á
Akranesi, Borgarnesi
og Kjalarnesi.
Matvælastofnun hefur óskað eftir
lögreglurannsókn á meintum flutn-
ingi fjögurra lambhrúta frá Vest-
fjörðum til Norðurlands eystra.
Óheimilt er að flytja sauðfé yfir
varnarlínur nema í sérstökum und-
antekningartilfellum að fengnu leyfi
stofnunarinnar. „Meintur flutning-
ur uppgötvaðist við eftirlit og hef-
ur flutningsbann verið sett á hrút-
ana,“ segir í tilkynningu frá Mat-
vælastofnun.
Árið 2016 sótti viðtakandi hrút-
anna um leyfi til Matvælastofnun-
ar um kaup á fimm lambhrútum úr
Vestfjarðahólfi vestra. Þeirri um-
sókn var hafnað. „Tilgangur dýra-
sjúkdómalaga er m.a. að hindra út-
breiðslu dýrasjúkdóma og vinna að
útrýmingu þeirra. Samkvæmt þeim
lögum ákveður ráðherra, að fengn-
um tillögum Matvælastofnun-
ar, hvaða varnarlínum skuli haldið
við. Varnarlínur eru ákveðnar til að
verja eftir föngum bústofn bænda
fyrir dýrasjúkdómum.“ mm
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar
samþykkti á fundi sínum fimmtu-
daginn 12. desember síðastliðinn
að ganga að tilboði Mílu í ljósleið-
arakerfi sveitarfélagsins. Tvö tilboð
bárust þegar auglýst var eftir þeim,
eins og áður hefur verið greint frá
í Skessuhorni. Annars vegar tilboð
Mílu sem hljóðar upp á 83,7 millj-
ónir króna og hins vegar tilboð
frá Gagnaveitu Reykjavíkur upp á
rúmar 49,2 milljónir.
Nokkur umræða hefur verið um
málið í Hvalfjarðarsveit undanfar-
ið, eins og áður hefur verið greint
frá. Salan á ljósleiðarakerfi sveitar-
félagsins til Mílu var samþykkt með
fimm atkvæðum en fulltrúar Íbúal-
istans voru á móti. Sveitarstjóra var
falið að ganga frá samningi við fyr-
irækið.
kgk
„Þessi eldri hryssa, Þrúður frá
Brautarholti, er týnd. Hennar er
sárt saknað,“ segir í tilkynningu.
Hryssan var í landi Sólheimatungu
í Borgarfirði og sást síðast í byrj-
un mánaðarins. „Búið er að ganga
landið og skoða í skurði en ekki sést
tangur né tetur af henni. Ef einhver
hefur séð hryssuna eða orðið var við
hana í sínum hrossahópum, endi-
lega hafið samband Völku í síma
616-1020 eða Guðna s. 664-8110.“
mm
Gagnaumferð um ljósleiðara
Gagnaveitu Reykjavíkur var rúm-
um fjórðungi meiri en venjulega
í óveðrinu þriðjudagskvöldið 10.
desember. Náði umferðin hámarki
kl. 21:25. Þá var straumur gagna
um ljósleiðarann 26,1% meiri en á
sama tíma en tæpri viku fyrr, mið-
vikudagskvöldið 3. desember og
hefur aldrei verið meiri. Þetta kem-
ur fram í tilkynningu frá veitum.
„Ljósleiðarinn nær til um 100.000
heimila og á umferðartölum um
netið í gær sést að fólk var fyrr
komið heim og byrjað að nýta net-
tengingu heimilisins fyrir símana
sína, sjónvarpið eða tölvuna. Fólk
virðist hafa sótt sér fréttir af fram-
vindu mála í gríð og erg strax eft-
ir að heim var komið því um þrjú-
leytið var umferðin eins og gjarna
sést undir kvöldmat á virkum dög-
um. Þetta hélt áfram og náði gagn-
aumferðin hámarki rétt fyrir klukk-
an hálftíu,“ segir í tilkynningunni.
kgk/ Ljósm. úr safni/ glh.
Lýst eftir hryssu Flutningi lambhrúta yfir
varnarlínu vísað til lögreglu
Margir á netinu í óveðrinu
Ljósleiðarinn seldur
Samvera
er besta
jólagjöfin
Fjölskyldan
saman um jólin