Skessuhorn - 18.12.2019, Blaðsíða 40
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 201940
tengja vírana við neðri sprengihleðsluna að nýju og kl. 15:00
var sprengt við rætur strompsins. Neðri hlutinn féll til jarðar.
Fjölmargir fylgdust með því þegar strompurinn féll, bæði var
fólk í nágrenninu og þá var bein útsending á netmiðlum. Þar
með lauk rúmlega 60 ára sögu sementsstrompsins, eins helsta
kennileitis Akranesbæjar. Fyrirtækið Work North ehf. annað-
ist verkið í samstarfi við undirverktakann Dansk Sprænging
Service, sem veitti sérfræðiaðstoð ásamt því að skipuleggja og
stjórna fellingu strompsins. Í sumar var unnið við að slétta
svæðið og var sáð í það grasfræi.
Stærsta listsýning ársins
Í sumar var á Snæfellsnesi sett upp listsýningin „Nr. 3 Um-
hverfing.“ Sjötíu listamenn komu að henni, þekktir sem
minna þekktir. Sýningin var formlega opnuð í Breiðabliki 22.
júní og stóð hún út ágúst. Um er að ræða myndlistarsýningu
á verkum listamanna sem hafa á einhvern hátt tengingu við
Snæfellsnes, hvort sem þeir hafi þangað ættartengsl eða hafa
búið þar á einhverjum tímapunkti. Tilgangur sýningarinnar
er að færa myndlistina nær fólkinu sem annars myndi ekki
fara á myndlistarsýningar og þannig skapa umræðu um listina
og lífið. Sýningarstaðir voru víðsvegar um Snæfellsnes. Sama
dag og sýningin var opnuð var formleg vígsla á þjónustumið-
stöðinni Breiðabliki þar sem ferðamenn geta m.a. leitað upp-
lýsinga.
Framkvæmdir hófust
við Þjóðgarðsmiðstöð
Í apríl hófst með formlegum hætti jarðvegsvinna fyrir nýja
Þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi. Guðmundur Ingi Guð-
brandsson umhverfisráðherra mætti af því tilefni á stað-
inn, steig upp í gröfu og hóf framkvæmdir með táknrænum
hætti. Viðstödd var einnig fyrirrennari hans í embætti, Sigrún
Magnúsdóttir, sem fyrir þremur árum tók fyrstu skóflustung-
una að miðstöðinni. Í sumar var svo unnið við að jarðvegs-
skipta fyrir væntanlegt hús.
Tvö banaslys í umferðinni
Tvö banaslys urðu í umferðinni í haust á vegum á Vestur-
landi. Erlendur ferðamaður lést eftir árekstur tveggja bíla á
Grjóteyrarhæð í september. Þá lenti fimm manna bresk fjöl-
skylda á smábíl utan vegar á Snæfellsnesvegi með þeim afleið-
ingum að bíllinn valt, tveir köstuðust út úr honum og annað
þeirra lést. Fjölmörg óhöpp urðu í umferðinni í landshlutan-
um á árinu, þar sem fólk slasaðist, mismikið þó. Eignatjón var
mikið. Skessuhorn hefur á þessu ári átt gott samstarf við Lög-
regluna á Vesturlandi við að miðla fréttum úr dagbókum lög-
reglunnar.
Elkem í fjörtíu ár
Framleiðsla kísiljárns á Grundartanga hófst 30. apríl 1979 og
fagnaði því Járnblendiverksmiðjan fjörutíu ára starfsafmæli á
árinu. Í tilefni þess var saga fyrirtækisins rifjuð upp í Skessu-
horni. Meðal annars var rætt við Jón Sigurðsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Íslenska járnblendifélagsins, um aðdrag-
andann og fyrstu áratugina, en einnig við Gest Pétursson for-
stjóra sem reyndar lét af störfum á árinu. Einar Þorsteinsson
kom að nýju í starfið.
Margir vilja beisla vindorkuna
Áætlanir um þrjú stór verkefni til undirbúnings vindorkugörð-
um hafa á þessu ári verið á teikniborðinu í Dölum og Reyk-
hólahreppi. Ef allar þær hugmyndir koma til framkvæmda
gæti heildar raforkuframleiðsla þeirra orðið allt að 410 mega-
wött, eða uppundir jafn mikil orka og samanlögð raforku-
framleiðsla Búrfellsvirkjunar og Blönduvirkjunar. Stærsta
virkjunin hér á landi er Kárahnúkavirkjun sem framleiðir 690
MW. Þá er í uppsveitum Borgarfjarðar verið að kanna væn-
leika þess að setja nokkrar vindmyllur upp á Grjóthálsi, milli
Þverárhlíðar og Norðurárdals.
Hollvinasamtökin lögðust í rúmin
Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunar Vesturlands hafa látið
gott af sér leiða þau fimm ár sem félagið hefur verið til. Í vor
hófu samtökin söfnunarátak þar sem leitað var eftir stuðningi
til kaupa á 29 nýjum sjúkrarúmum sem nauðsynlegt er að end-
urnýja á HVE. Á meðfylgjandi mynd er Sævar Freyr Þráins-
son, bæjarstjóri og stjórnarmaður í hollvinasamtökunum, að
póstleggja bréf til 903 fyrirtækja og félaga með áskorun um
þátttöku í verkefninu. Söfnunin hefur gengið frábærlega og
nú í haust voru tólf sjúkrarúm afhent á einu bretti og enn bæt-
ist við.
Gestastofa fyrir friðland fugla
Í lok apríl var Gestastofa fyrir friðland fugla í Andakíl opnuð
í gömlu fjóshlöðunni við Landbúnaðarsafn Íslands á Hvann-
eyri. Um er að ræða fyrsta áfanga gestastofunnar, en drög að
næstu áföngum verkefnisins voru lögð með ráðningu Brynju
Davíðsdóttur sem sinna mun ráðgjöf við næstu skref við upp-
byggingu gestastofunnar. Við sama tilefni undirritaði Guð-
mundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra verndaráætl-
un fyrir Ramsarsvæðið Andakíl.
Viðbragðsaðilar
stilla saman strengi
Í vor var umfangsmikil hópslysaæfing viðbragðsaðila á Vest-
urlandi haldin á Snæfellsnesvegi á móts við Kaldármela. Und-
irbúningur að æfingunni hafði staðið í nokkra mánuði en þátt
í henni tóku lögregla, björgunarsveitir, slökkvilið, sjúkraflutn-
ingafólk, Landhelgisgæslan og félagar í Rauða kross deildum.
Komið var upp slysavettvangi þar sem bæði hópferðabíll og
fólksbílar höfðu lent í árekstri. Voru eldar kveiktir á svæðinu á
meðan á æfingunni stóð og allt gert til að gera æfinguna sem
líkasta vettvangi raunverulegs stórslyss. Fjöldi sjálfboðaliða
tók þátt og lék slasaða. Um 120 viðbragðsaðilar tóku þátt í
æfingunni sem gerir hana um leið með þeim stærri sem haldn-
ar hafa verið á Vesturlandi.
Tjón í eldsvoða í Fjöliðjunni
Í maí kom eldur upp í vinnu- og hæfingarstaðnum Fjöliðj-
unni við Dalbraut á Akranesi. Eldurinn kviknaði að kvöldi
og var engin starfsemi eða mannskapur í húsinu. Talsverðar
skemmdir urðu á húsnæðinu, einkum á miðrými þess, en sót
og reykur fór um alla bygginguna. Strax varð ljóst að hefð-
bundin starfsemi legðist þar af, varanlega eða tímabundið.
Starfseminni var komið fyrir á Smiðjuvöllum 9, í húsnæði Ak-
urs, þar sem hún er í dag.
Glæsileg frístundamiðstöð
tekin í gagnið
Akraneskaupstaður og Golfklúbburinn Leynir buðu bæjarbú-
um og gestum til formlegrar opnunar á nýrri Frístundamið-
stöð við Garðavöll í maí. Frístundamiðstöðin er þúsund fer-
metrar að flatarmáli, fjölnota hús sem í senn verður klúbb-
og félagsaðstaða golfklúbbsins Leynis með æfingaaðstöðu í
kjallara, fundaaðstöðu og veitingastaðnum Galitó bistro café,
en auk þess allt að tvö hundruð manna veislusalur til útleigu.
Húsið er mikil lyftistöng fyrir félagsaðstöðu Akurnesinga, en
það bætir ekki síst möguleika Golklúbbsins Leynis sem nú er
á flestum sviðum í fararbroddi íslenskra klúbba hvað alla að-
stöðu varðar. Mjög góð nýting hefur verið á húsinu allt frá
opnun þess.
Sláttur hófst í mái
Veðrið lék við bændur um vestanvert landið í sumar og var
árið gott til heyskapar. Að vísu fór að draga úr sprettu þeg-
ar leið að miðju sumri, þar sem úrkoma var afar takmörkuð
allt frá apríl og fram undir lok júlí. Heyfengur er því mikill að
gæðum en minni að magni. Á meðfylgjandi mynd er Bjartmar
Fréttaannáll ársins 2019 í máli og myndum
Framhald á næstu opnu