Skessuhorn - 18.12.2019, Blaðsíða 53
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2019 53
Kveðjur úr héraði
Digranesgötu 6 - Borgarnesi - Sími: 437 1920
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
9
Geirabakarí óskar öllum gleðilegra jóla, góðs og farsæls komandi árs.
Þakkar viðskiptin á árinu sem er að líða.
21. desember laugardagur 8.00-16.00
22. desember sunnudagur 8.00-16.00
23. desember Þorláksmessa 7.00-18.00
24. desember Aðfangadagur LOKAÐ
25. desember Jóladagur LOKAÐ
26. desember Annar í jólum LOKAÐ
27. desember föstudagur 7.00-18.00
28. desember laugardagur 8.00-16.00
29. desember sunnudagur 8.00-16.00
30. desember mánudagur 7.00-17.00
31. desember Gamlársdagur LOKAÐ
1. janúar Nýársdagur LOKAÐ
2. janúar fimmtudagur 7.00-17.00
Opnunartími fram yfir jól
Verslum í heimabyggð
Jólakveðja úr Borgarnesi:
Senn líður að jólum – og 2019 rennur sitt skeið
Það er ótrúlegt hve árin líða hratt
sérstaklega eftir að eftirlaunaaldr-
inum er náð. Héðan úr Borgarnesi
er allt gott að frétta og hefur árið
verið einstaklega gott hvað veðurfar
varðar, ég man varla eftir eins góðu
sumri. Árið byrjaði vel. Í lok janúar
var Teddi lögga með sýninguna sína
„Farðu á þinn stað“. Þar rifjar hann
upp æskuminningar sínar og sögur
úr starfi og leik. Þetta var alveg ein-
staklega skemmtileg sýning og var
mikið hlegið. Sýningin var á Sögu-
lofti Landnámssetursins en fleiri
góðar sýningar sá ég þar á árinu.
17. júní hátíðarhöldin í Skalló
klikka ekki. Þar er yfirleitt alltaf
logn og gott veður í skjóli trjánna.
Það er alltaf viss stemning að sitja
úti í garði og fá sér kaffi og kruð-
erí hjá kvenfélagskonunum og hitta
mann og annan. Þar hittir mað-
ur oft brottflutta Borgnesinga sem
segjast hvergi vilja vera á 17. júní
nema í gamla góða Nesinu sínu.
Brákarhátíð var á sínum stað í
júnílok. Björgunarsveitin bauð í
siglingu á bátum sínum og fleiri
buðu fram báta og var mjög vin-
sælt. Þar á meðal flaggskip okk-
ar „Ellan“ bauð fólki á sjó. Annars
liggur hún yfirleitt allt sumarið á
Brákarsundi til mikillar prýði. Öll-
um var boðið í morgunverð á plan-
inu hjá Fornbílasafninu, en á eft-
ir voru skemmtiatriði. Opið var hjá
Fornbílafélaginu, Golfklúbbnum,
Skotfélaginu og Nytjamarkaðinum.
Seinnipart dagsins var brekkusöng-
ur í Dalhallanum og var meiriháttar
gaman að sitja þarna og syngja með
öllum hinum.
Undanfarið rúmt ár hefur hóp-
ur fólks frá sjóbaðsfélaginu „Sea-
men“ stundað sjóböð hér við Borg-
arnes. Ég verð að monta mig af því
að ég og vinkonur mínar syntum oft
í sjónum fyrir ca. 60 árum og fór-
um alltaf út frá gömlu kaupfélags-
bryggjunni.
Í júlí fór hluti stórfjölskyldunnar
í sumarbústað á Eiðum og nutum
við þess að skoða nágrennið og fara
niður á firðina. Við fengum sæmi-
legt veður í ferðinni, fórum suð-
urleiðina heim, stoppuðum til að
skoða Jökulsárlón og dást af því.
Í sumar lét ég loksins verða af því
að labba úr Einkunnum og niður
að Borg. Það er búið að vera lengi
á döfinni hjá mér, en góð kunn-
ingjakona sem farið hefur þessa
leið margoft sem fararstjóri fór
með okkur. Við vorum einstak-
lega heppnar með veður og fló-
inn alveg þurr svo þetta var ekkert
nema dýrðin ein. Allt í einu birt-
ist ein úr gönguhópnum labbandi
á móti okkur, það lífgaði upp á sel-
skapinn. Við stoppuðum svo í garð-
inum hjá prestshjónunum og áttum
gott spjall. Úr því ég er að tala um
göngu þá er hér hópur fólks, Gal-
vaski gönguhópurinn, sem gengur
saman á hverjum þriðjudagsmorgni
í ca. eina klukkustund.
Um daginn var ég svo heppin
að fá að skoða nýja salinn og aðr-
ar breytingar í grunnskólanum.
Þetta er alveg stórglæsilegt og öll-
um til sóma. Útsýnið úr salnum er
alveg dásamlegt, það er ekki hægt
að hugsa sér fallegra málverk. Mikl-
ar breytingar eru orðnar á gamla
góða skólanum mínum. Þegar ég
byrjaði þar fyrir 69 árum voru fjór-
ar kennslustofur, smíðastofa, mat-
reiðslustofa og þessi flotti leikfimi-
salur. Þar æfðum við þegar við urð-
um Íslandsmeistarar í körfubolta
1964. Ég verð nú að segja að ég sé
þó nokkuð eftir honum, en hann var
búinn að standa fyrir sínu en síðast
var þar kennd smíði. Grunnskólinn
tók Bjössaróló í fóstur í vor. Krakk-
arnir á unglingastigi grunnskólans
ásamt umsjónarkennurum máluðu
tækin og löguðu það sem bilað var.
Þetta ár sem nú rennur sitt skeið
er eitthvað það sólríkasta sem ég
man eftir. Veðrið er búið að vera
gott síðan í maí og fegurð sólar-
lagsins engu lík núna í nóvember.
Nú er mál að ég linni þessum þönk-
um mínum. Munum að njóta að-
ventunnar, gefa okkur stund með
vinum og vandamönnum, drekka
súkkulaði og borða smákökur.
Óska ég lesendum Skessuhorns
gleðilegra jóla og gæfuríks komandi
árs og megi nýja árið verða okkur
öllum gott og gæfuríkt og munum
eftir að gefa smáfuglunum.
Á hugann leita löngu gengnir
dagar
ljúft er þá í minningunni að
geyma
best og bjartast, - upp úr öllu
skagar
bernsku minnar jólin hérna
heima.
(IH)
Jólakveðja úr Borgarnesi,
Ingibjörg Hargrave
Sólsetur í Borgarnesi
Ingibjörg Hargrave, eða Imba eins
og hún er oft kölluð, á góðri stundu í
sumar.