Skessuhorn - 18.12.2019, Blaðsíða 89
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2019 89
það í neyð ég tala,
Guð mig leiði greitt um sinn
grund um heiðar svala.
Rétt eftir þetta kem ég að gili,
og gladdist ég við það, því ég þótt-
ist vita að það lægi til sjávar. Held
ég nú vel áfram, og var nú orðið
aldimmt, og sama snjókoman, en
heldur farið að hvessa, samt hélt ég
lengi áfram, þangað til allt í einu,
að ég sé einhvern ógurlegan sorta
fram undan mér, svo ég stansa og
fálma með stafnum fram fyrir mig,
og finn ég að er snarbratt bjarg
fyrir framan mig, og hefði ég far-
ið feti framar, hefði ég hrapað ofan
fyrir. Ég sný sem fljótast til baka,
og þegar ég er búinn að ganga dá-
lítið, kem ég í tanga, og eru gil á
báðar hliðar, og varð ég að láta
þarna fyrirberast um nóttina, þó
ekki væri álitlegt.
Ljótasta klettafjall
á landinu!
Nú fann ég að mér hefði verið
betra að hlýða ráðum mannsins.
Ég sá nú líka að það var slæmt að
vera nestislaus, en ég saup á flösk-
unni og hresstist mikið. Þarna var
ekkert skjól en ég heitur, en það
vildi til að það var ekki mikið frost.
Ég ýmist sat eða stóð eða „gekk
um gólf“. Ég fór nú að hugsa um
hvað ég hafði gert rangt, og sá ég
að Guð hafði enn einu sinni bjarg-
að mér úr lífshættu, og þakkaði
ég honum fyrir það, og las kvöld-
bænir mínar. Svona hafðist ég við
þarna yfir nóttina; ég saup á vín-
flöskunni þegar mér kólnaði fyrir
brjóstinu, og hlýnaði mér þá, og
hresstist í hvert sinn.
Loksins leið nóttin og var þá
komið gott veður, og varð ég feg-
inn, og lofaði Guð fyrir að nótt-
in var liðin.
Þegar dálítið fór að birta, fór ég
að ganga til og frá, til að sjá hvar
ég var staddur, og sá ég nú að ég
var fremst á Þyrlinum, sem er eitt-
hvert ljótasta klettafjall á landinu.
Nú sá ég hvar ég hafði verið stadd-
ur um kvöldið, og að sjórinn hafði
verið sortinn, sem ég hafði séð.
Ég fór nú að hugsa um að kom-
ast burt úr þessum stað, og gekk ég
til baka, og sá ofan í Botnsdalinn,
og hugsaði ég mér að komast til
bæja til að fá mat og hvíla mig eft-
ir nóttina. En það var ekki hlaup-
ið að því að komast ofan snarbratta
kletta, og varð ég að ganga langt
áður en ég komst ofan, og var þó
ekki álitlegt að fara ofan þar sem
ég fór. En samt komst ég klakk-
laust ofan, og fór heim að bæ, sem
var skammt frá.
Það voru tveir bæir í dalnum,
og hétu báðir „Botn“. Ég fór heim
að öðrum bænum, og þegar ég er
kominn heim á hlaðið, kemur gam-
all maður út. — Mér datt í hug að
þetta væri líkt eins og sagt er í úti-
legumannasögunum, þegar menn
voru búnir að villast, og komu í
dal, og fundu bæ. — Ég hugsaði,
hvernig skal þessi karl reynast.
Bærilegur klettamaður
Ég heilsa honum nú, og segir hann:
„Þú ert snemma á ferð,“ því það
var ekki orðið fullbjart. „Nokk-
uð,“ segi ég. „Hvar varstu í nótt?“
— Segir hann. „Ég var hérna uppi
á heiðinni, eða réttara sagt uppi á
Þyrlinum.“ Hann spyr mig nú að á
hvaða ferð ég sé, og segi ég honum
það. Hann segir mér nú að koma
inn sem fljótast.
Þegar ég kom inn, sá ég gamla
konu, og unga stúlku, sem ég þótt-
ist vita að væri dóttir karls og kerl-
ingar. Ég heilsa þeim, og karl seg-
ir þeim hvernig ástatt sé fyrir mér,
og segist halda að ég þurfi hress-
ingar við, og er komið með nóg-
an mat og kaffi. Svo segir karlinn
mér að hátta ofan í rúm; segir mér
veiti ekki af að sofa og hvíla mig,
„og verða hérna í dag,“ — og var
það satt. En ég segi að mig langi
til að ná yfir heiðina í dag og bið
hann að vekja mig um miðjan dag.
Karl tók skóna mína og voru þeir
komnir í sundur og sækir hann
bætur og fer að bæta þá sjálfur, en
segir að þurrka vel sokkana mína.
— Ég hafði aldrei séð þetta fyrr,
að karlmaður gerði þetta þegar
kvenfólk var við. En hann nefndi
það ekki við þær, heldur gerði það
sjálfur.
Ég fór nú að reyna að sofna, og
tókst mér að sofna, en ég svaf svo
laust að ég heyrði allt, sem talað
var, í gegnum svefninn. Ég heyri
að það eru komnir tveir menn og
eru að tala við fólkið, og segja, að
þeir hafi séð slóð eftir mann, sem
hafi komið ofan af Þyrlinum, en
ekki sögðust þeir vita hver „svo
sem þeir kváðu á“ hefði hjálp-
að honum til að komast ofan
klettana þar sem hann hefði farið.
— En karlinn segir: „Þessi maður
er hér og lá hann úti upp á Þyrl-
inum í nótt, en kom hér í morg-
un til að fá hressingu og hvíla sig.
Hann er ferðamaður að norðan og
er á norðurleið, og segist ætla að
leggja á heiðina í dag.“ — „Það er
bærilegur klettamaður,“ segja þeir.
„Mér líst svo á þann pilt, að hann
muni vera fær í flestan sjó,“ segir
karl. Svo töluðu þeir ekki meir um
þetta og fóru litlu síðar.
Ég var vakinn á tilteknum tíma,
klæði ég mig sem fljótast, og var
búið að þurrka sokkana mína og
bæta skóna vel, og er komið með
heita kjötsúpu handa mér að borða.
Þegar ég er búinn að borða, þakka
ég alúðlega fyrir greiðann og að-
hlynninguna, og biður þá karl mig
að vera um kyrrt í dag, því það sé
seint að leggja á heiðina; en ég seg-
ist ekki sleppa þessu góða veðri, og
haldi að Vatnshorni í kveld. — „Þú
ert kappsamur,“ segir hann.
Nú ætlaði ég að fara að borga
karli fyrir þessar góðu viðtökur; —
já, ég ætlaði að borga þær vel. En
þegar ég ætlaði að fá honum pen-
inga varð hann byrstur og segir:
„Mér dettur ekki í hug að taka við
peningum af þér fyrir þennan litla
greiða, sem ég hefi gert þér; því ég
hefði viljað gefa peninga til þess að
þú hefðir verið hjá mér í nótt, en
ekki legið úti.“
Forsíða bókarinnar.
Velkomin í sund!
Opnunartími Íþróttamannvirkja Borgarbyggðar um jól og áramót 2019
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Íþróttamiðstöðin í Borgarnesi
23. des. Þorláksmessa opið 06:00-18:00
24. des. Aðfangadagur jóla opið 8:00-12:00
25. des. Jóladagur LOKAÐ
26. des. Annar í jólum LOKAÐ
31. des. Gamlársdagur opið 8:00-12:00
1. janúar 2020 LOKAÐ
Íþróttamiðstöðin á Kleppjárnsreykjum
23. des. Þorláksmessa Lokað
24. des. Aðfangadagur LOKAÐ
25. des. Jóladagur LOKAÐ
26. des. Annar í jólum LOKAÐ
27. des. Föstudagur opið 08:00-16:00
29. des. Sunnudagur opið 13:00-18:00
31. des. Gamlársdagur LOKAÐ
1. janúar 2020 LOKAÐ
Íþróttamiðstöðin á Varmalandi
LOKAÐ