Skessuhorn - 18.12.2019, Blaðsíða 70
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 201970
Áhugaljósmyndarar finnast víða og
fór þeim fjölgandi eftir að stafræn
ljósmyndatækni gerði slíkt áhuga-
mál í senn ódýrara og auðveldara
en þekktist á filmu- og framköllun-
artímabilinu. Þeir eru ekki endilega
að ljósmynda í atvinnuskini held-
ur drífur áhuginn og áhugamálið
þá áfram. Mjög víða stunda áhuga-
ljósmyndarar ómetanlega samtíma-
skráningu fyrir sín byggðarlög, skrá
atvinnu- og menningarsöguna um
leið og þeir safna í albúmið. Sam-
tímaskráning af þessu tagi er oft
vanmetin, en við á Skessuhorni
köllum þetta Sagnaritara samtím-
ans.
Hér á Vesturlandi eru fjölmarg-
ir sem stunda áhugaljósmyndun af
kappi. Í jólablöðum Skessuhorns
allt frá upphafi útgáfunnar hef-
ur einn áhugaljósmyndari á Vest-
urlandi verið kynntur til leiks. Við
köllum þetta fólk Sagnaritara sam-
tímans; samtímasöguritara. Fólk-
ið sem á í fórum sínum þúsundir
eða tugþúsundir mynda frá liðnum
árum. Myndir sem varðveita annars
glötuð augnablik.
Áhuginn endurvakinn
með stafrænu tækninni
Þórdís Björnsdóttir hefur alltaf
haft gaman af ljósmyndun en seg-
ir þó áhugann hafa kviknað fyr-
ir einhverri alvöru árið 2005 þegar
hún eignaðist sína fyrstu stafrænu
myndavél. „Ég gæti ekki sagt þér
hvernig myndavél ég átti fyrst. Lík-
lega var ég í kringum 16 ára aldur-
inn þegar ég eignaðist myndavél en
ég er löngu búin að gleyma hvaða
tegund það var. Á 6. og 7. áratug-
unum tóku Kodak Instamatic við
og mátti finna þær vélar á flestum
heimilum á þessum tíma. Í dag er
ég hins vegar að skjóta á Canon eos
80D og nota í leiðinni aðallega tvær
linsur; Sigma 17-70 mm í landslags-
myndir og svo Sigma 100-400 mm
í fuglamyndatökur,“ segir Þórdís.
Nauðsynlegt að
eiga áhugamál
Þórdís hefur búið á Akranesi síð-
an 1961 en er alin upp í Fljótshlíð-
inni í Rangárvallarsýslu. Sama ár
giftist hún eiginmanni sínum, Þor-
valdi Guðmundssyni, og fluttu þau
í kjölfarið á Akranes. Saman eign-
uðust þau fjögur börn, þrjá stráka
og eina stelpu, barnabörnin eru
orðin sex og það yngsta rúmlega
ársgamalt. Í dag tekur Þórdís því
rólega eftir að hún hætti að vinna.
Hún les mikið, hlustar á bækur,
horfir á sjónvarp og tekur myndir
þegar tími gefst auk þess sem hún
hugsar um heimilið sem hún segir
auðvelt verk þar sem þau hjónin eru
tvö eftir í kotinu. „Ég hef átt nokk-
ur áhugamál í gegnum tíðina, t.d.
var ég mikið í bútasaum sem veitti
mér mikla ánægju í fleiri ár. Ég er
þeirrar skoðunar að það sé nauð-
synlegt að eiga sér áhugamál, sér-
staklega eftir að komið er á eftir-
laun. Það er úr svo mörgu að velja
að allir ættu að geta fundið eitthvað
við sitt hæfi.“
Fjölbreytt myndefni
„Ég hef gaman af svo mörgu þeg-
ar kemur að ljósmyndun. Í fyrstu
myndaði ég mest landslag, ég var
líka alltaf með myndavélina á lofti
í ferðalögum. Mér þykir nefnilega
sérstaklega gaman að mynda fólk í
útlöndum. Á sumrin mynda ég mik-
ið blóm og fugla. Einnig er ég dug-
lega að prófa mig áfram í mynd-
vinnsluforritinu Photoshop, og
þykir mér gaman að fikta í mynd-
um, svo þetta er mjög fjölbreytt og
skemmtilegt hjá mér,“ segir Þórdís
en bætir við að fuglaljósmyndun sé
líklega hennar uppáhalds myndefni
því það er svo vandasamt að ná góð-
um og nothæfum myndum af fugl-
unum sem flestir eru yfirleitt alltaf
á hreyfingu og með varann á.
Það að taka myndir er ekki alltaf
eins einfalt og það, að taka mynd-
ir. Til að ná góðri mynd sem fangar
augu annarra þarf að hafa ýmislegt
í huga. Ljós spilar stórt hlutverk á
hverri mynd sem er tekin sem og
myndbygging sömuleiðis. „Ljós-
myndun getur verið mjög tækni-
leg. Þegar ég byrjaði með fyrstu
stafrænu myndavélina mína hafði
ég ekki kynnt mér mikið tæknilegu
hliðina á ljósmyndun. Í dag veit ég
aðeins meira og hef aflað mér upp-
lýsinga á netinu og var áskrifandi
að ljósmyndablöðum. Ég er einn-
ig meðlimur í félagi áhugaljós-
myndara á Akranesi, Vitanum, þar
er fræðsla og stuðning að fá,“ seg-
ir Þórdís.
Góð mynd á
að vekja áhuga
Þórdís hefur tekið einhver ósköp af
myndum í gegnum tíðina eins og
hún orðar það sjálf. „Ég á mynd-
ir af næstum öllum kirkjum á land-
inu, um 360 talsins og við hjónin
höfum ferðast mikið um landið og
myndað allt mögulegt. Ég á að vísu
ekki allar myndir sem ég hef tekið
og reyni að henda öllum misheppn-
uðu myndunum en geyma aðrar á
flökkurum og myndlyklum. Einnig
hef ég prentað út mikið af mynd-
um, þá helst þær sem ég vil alls ekki
glata,“ útskýrir Þórdís sem segir að-
alatriðið að góðri mynd sé skerpa,
falleg birta, áhugavert myndefni og
allt í fókus. „Að mínu mati er mynd
góð ef hún vekur áhuga, undrun og
spurningu áhorfandans, en það er
alltaf vandi og skemmtileg áskor-
un,“ segir Þórdís að endingu.
glh. Ljósm. úr einkasafni Þórdísar
Björnsdóttur.
Sagnaritari samtímans tekinn tali
Þórdís Björnsdóttir frá Akranesi
Þórdís Björnsdóttir er sagnaritari samtímans árið 2019. Ljósm. glh.
Hvalfell í Hvalfirði.
Seljalandsfoss. Fossá í Hvalfirði. Ryð á vegg á gömlu húsi á Akranesi.
Mynd tek in á Grænhöfðaeyjum í
haust.
Fiktað í mynd frá Akraneshöfn með
tilheyrandi myndvinnsluforriti.