Skessuhorn - 18.12.2019, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2019 29
Sex manns sem búa á Silfurtúni í
Búardal hafa náð þeim virðulega
aldri að komast yfir nírætt. Fimm
þeirra eru íbúar á Silfurtúni; ní-
ræðar eru þær Inga Aðalheiður
Guðbrandsdóttir, Pálína Guðrún
Gunnarsdóttir og Guðbjörg Mar-
grét Jónsdóttir, sem aldrei er kölluð
annað en Bigga. Jóhann Sæmunds-
son er 91 árs en aldursforseti hóps-
ins er Selma Kjartansdóttir, 95 ára.
Kveðst hún ekki vita betur en að
hún sé elsti íbúi Dalabyggðar. Auk
þeirra er Ríkarður Jóhannsson 93
ára. Hann er ekki heimilismaður á
Silfurtúni í eiginlegum skilningi,
en leigir þar á heimilinu.
Skessuhorn hitti sexmenningana
í matsal Silfurtúns á dögunum og
ræddi við þau um daginn og veg-
inn yfir kaffibolla og konfekt-
mola. Rætt um daginn og veginn,
heilsufar og það sem helst er tíð-
inda úr Dölum um þessar mund-
ir; húsbyggingar, en núna er verið
að byggja bæði raðhús og einbýlis-
hús í Búðardal. Slíkt gerist ekki á
hverjum degi og þau rifja upp að
það sé ekki nýtt af nálinni að lang-
ur tími líði á milli húsbygginga
í bænum. Þá er rifjaður upp að-
dragandinn að byggingu mjólkur-
stöðvarinnar, sem hefur um langa
hríð verið stærsti vinnustaður Dal-
anna og lífshlaupið í sveitinni ber
líka á góma. Sauðfjárræktin hef-
ur lengi verið eitt aðalsmerki Dal-
anna en fólkið hefur áhyggjur af
greininni í dag og þykir staða sauð-
fjárbúskaparins ekki góð um þess-
ar mundir. Ýmislegt fleira var rifjað
upp og spjallað, rætt fregnir annars
staðar frá og og spjallað um heim-
spekilegri umræðuefni eins og tím-
ann sjálfan.
Alltaf líkað vel í Dölum
Spurð um veruna á Silfurtúni segja
þau að þar sé gott að vera. Vissulega
segja þau að það hafi verið viðbrigði
að flytja þangað fyrst um sinn en voru
sammála um að þar væri gott að vera.
Öll eru þau svo lánsöm að vera heilsu-
hraust að mestu leyti, þó vissulega hafi
ákveðnu viðhaldi verið sinnt. Auðvi-
tað vilji allir búa heima sem lengst, en
þegar flutt er á dvalarheimili telja þau
best að fólk komist þar að á meðan
það er enn við sæmilega góða heilsu.
Reyndar láta Inga, Pálína, Bigga,
Jóhann, Selma og Ríkarður ekki að-
eins vel af Silfurtúni, heldur segja þau
að þeim hafi alltaf líkað vel í Dölun-
um. Þar hafa þau öll alið manninn svo
áratugum skiptir og sum hver búið þar
alla sína tíð, frá blautu barnsbeini.
Aðspurð kváðust þau ekki hafa
leyndarmál langlífisins á reiðum
höndum, en sammældust um að mað-
ur ætti alltaf að vera maður sjálfur, trúr
sjálfum sér. Slíkt gildir auðvitað sama
hvort fólk er ungt eða eldra. Það væri
eina leiðin til að lifa lífinu.
kgk
Sendum íbúum Borgarbyggðar,
svo og Vestlendingum öllum,
okkar bestu óskir um gleðileg jól
og farsæld á komandi ári.
Þökkum samskiptin á árinu
sem er að líða.
Sveitarstjórn og starfsfólk
Borgarbyggðar
Jólakveðja
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
9
Aldursforsetar Dalanna heimsóttir
Rætt við sex íbúa sem allir eru á tíræðisaldri
Jóhann Sæmundsson, Selma Kjartansdóttir, Inga Aðalheiður Guðbrandsdóttir, Pálína Guðrún Gunnarsdóttir, Guðbjörg Margrét Jónsdóttir og Ríkarður Jóhannsson.
BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL
OG FARSÆLT KOMANDI ÁR
er að líða
Haraldur Benediktsson
Teitur Björn Einarsson
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
6
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
6