Skessuhorn - 18.12.2019, Blaðsíða 65
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2019 65
ÓSKUM STARFSMÖNNUM OG VESTLENDINGUM
GLEÐILEGRA JÓLA OG FARSÆLDAR Á KOMANDI ÁRI
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Á VESTURLANDI Í 40 ÁR
Starfsfólk Elkem Ísland hafði til-
efni til að fagna á föstudag, þegar
útskrifað var úr tækninámi Elkem
Ísland í fyrsta sinn. Átta nemend-
ur voru í fyrsta hópnum sem lýk-
ur námi og fengu þeir afhent við-
urkenningarskjal því til staðfest-
ingar. Það eru þeir Andri Már Jó-
hannsson, Börkur Tryggvi Ómars-
son, Heimir Hallsson, Hjálmar Þór
Ingibergsson, Jóhannes H. Smára-
son, Ólafur Dór Baldursson, Sigur-
geir Guðni Ólafsson og Sigurgeir
Sigurðsson. Þeir hafa stundað nám
undanfarnar þrjár annir og öðlast á
þeim tíma yfirgripsmikla þekkingu
á hverju því sem lýtur að rekstri El-
kem Ísland. „Þeir hafa unnið ýmis-
leg umbótaverkefni, heimsótt önn-
ur fyrirtæki og farið á ráðstefnu,“
segir í tilkynningu frá Elkem Ís-
land. Skólastjóri í tækninámi El-
kem Íslands er Tjörvi Berndsen, en
hann á heiðurinn að öllu skipulagi
námsins.
kgk
Útskriftarnemar ásamt skólastjóra
síðastliðinn föstudag. F.v. Sigur-
geir Guðni Ólafsson, Hjálmar Þór
Ingibergsson, Sigurgeir Sigurðsson,
Jóhannes H. Smárason, Andri Már
Jóhannsson, Ólafur Dór Baldursson og
Heimir Hallsson. Fyrir framan krýpur
Tjörvi Berndsen skólastjóri. Á myndina
vantar Börk Tryggva, sem ekki gat
verið viðstaddur útskriftina þar sem
hann eignaðist stúlku þennan sama
morgun.
Útskrifað úr tækninámi Elkem í fyrsta sinn