Skessuhorn - 18.12.2019, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2019 31
Kannanir hafa sýnt að eldvarnir eru
ófullnægjandi á mörgum heimilum
og íbúarnir því berskjaldaðir fyr-
ir eldsvoðum. Hættan er mest þeg-
ar líður að jólum, þegar skreytingum
fjölgar. Svo um sjálfar hátíðarnar þarf
að passa upp á enn fleira, svo sem raf-
orkunotkun, ástand reykskynjara,
logandi kerti og margt fleira.
Í ljósi þess að nú gengur í garð sá
árstími þar sem hætta er á eldsvoðum
af völdum kertaljósa og jólaskreyt-
inga hefur Bjarni K. Þorsteinsson
slökkviliðsstjóri í Borgarbyggð tekið
saman lista með atriðum sem nauð-
synlegt er að hafa í huga um hátíð-
irnar. Bjarni tekur fram að hann mæl-
ir fyrir hönd allra slökkviliða í lands-
hlutanum, sömu heilræða eiga alls-
staðar við. Ábendingar Bjarna fylgja
hér á eftir.
Lágmarkseldvarnir á
heimilum eru:
Virkir reykskynjarar, tveir eða •
fleiri.
Léttvatns- eða duftslökkvitæki við •
helstu flóttaleið.
Eldvarnateppi á sýnilegum stað í •
eldhúsi.
Gætum varúðar um jól
og áramót
Reykskynjarar eru sjálfsögð og •
ódýr líftrygging, skipta skal um
reykskynjara á tíu ára fresti. Og
rafhlöður í byrjun desember ár
hvert eða oftar ef þörf er á.
Átt þú handslökkvitæki? Er það í •
lagi? Hvenær var það síðast yfir-
farið?.
Slökkvitæki á að vera á sýnilegum •
stað, ekki í felum inni í skáp!
Ofhlöðum ekki fjöltengi og gætum •
að gömlum og lélegum rafbúnaði.
Notum ávalt viðurkenndar raf-•
vörur og fjöltengi með slökkvara
og gaumljósi.
Eldvarnateppi skal vera í hverju •
eldhúsi og á aðgengilegum og
sýnilegum stað.
Gerum flóttaáætlun úr íbúð-•
inni vegna eldsvoða með öllum
á heimilinu og æfum hana reglu-
lega. Tvær greiðar flóttaleiðir úr
hverri íbúð!
Gætum varúðar í umgengni við •
kertaljós og skreytingar, skilj-
um börn aldrei eftir eftirlitslaus
nærri logandi kertum eða eldi.
Aðgætum íbúðir okkar áður en •
gengið er til hvílu, eða þær eru
yfirgefnar að degi til, hvort nokk-
ursstaðar logi á kerti eða skreyt-
ingum.
Logandi kertaljós séu aldrei höfð •
í gluggum vegna dragsúgs og
lausra gardína.
Dreifið sem mest raforkunotk-•
un við matseld um jól og áramót.
Það kemur í veg fyrir hugsan-
leg óþægindi vegna mikils álags á
dreifikerfi rafmagns.
Ullar- eða leðurvettlingar á •
höndum og öryggisgleraugu á öll
nef við meðferð flugelda um ára-
mót.
Munum 112 Neyðarlínuna ef •
slys, veikindi eða eldsvoða ber að
höndum.
mm
Gagnleg ráð og ábendingar vegna eldvarna
og slysahættu um hátíðarnar
Stjórn og starfsfólk
Búnaðarsamtaka
Vesturlands sendir bændum
og búaliði á starfssvæði
Búnarsamtakanna hugheilar
jólakveðjur með ósk um
farsælt komandi ár.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Þökkum samstarf
á árinu sem
er að líða.
Starfsfólk og sveitarstjórn
Hvalfjarðarsveitar sendir íbúum
og landsmönnum öllum hugheilar
jóla- og nýárskveðjur með
þökkum fyrir ánægjulegt
samstarf á líðandi ári
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9