Skessuhorn - 18.12.2019, Blaðsíða 49
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2019 49
Kveðjur úr héraði
Í ljósi þess að ég er fædd upp úr
miðri síðustu öld þá liggur fyrir að
maður er orðin rúmlega miðaldra
og tíminn milli jóla er sífellt fljótari
að líða. Þrátt fyrir að vera á sextugs
aldri hlakka ég nú samt til jólanna,
hlakka til að upplifa gleði og eft-
irvæntingu barnabarnanna, njóta
samvista við ættingja og vini og
kærkominna frídaga ásamt margs-
konar menningar sem í boði er, í
fjölmiðlum og annars staðar.
Á aðventunni er sá siður sífellt
að sækja í sig veðrið að lesa upp
úr bókinni Aðventu eftir Gunnar
Gunnarsson og ég viðurkenni að
þessi siður gleður mitt sveitamanns-
hjarta. Þar segir að „þegar hátíð fer
í hönd, undirbúi menn hana hver á
sína vísu“. Háttur Benedikts sauða-
manns, þess sem sagan fjallar um,
var sá að fara til fjalla á þeim árs-
tíma og leita týndra sauða sem ekki
höfðu skilað sér heim í haustleitum.
Drifkrafturinn í þeirri baráttu við
náttúruöflin var að hann mátti ekki
til þess hugsa að skepnurnar yrðu
hungri og kulda að bráð. Hann átti
ekki fjölskyldu og hafði ekki fyrir
neinum að sjá en fann lífi sínu sér-
stakan tilgang með þessum hættu-
legu ferðum.
Ég verð alltaf svolítið leið þeg-
ar ég uppgötva að það hlakka ekki
allir til þeirrar hátíðar sem nú fer
í hönd og stundum læðist að mér
sá grunur að mannskepnan hafi
einhvern veginn tapað tilgangin-
um á vegferð sinni. Það er gott að
hafa tilgang með lífinu, að upplifa
sig sem hluta af heild og að maður
skipti máli. Lífsgæðakapphlaup og
þjónusta við Mammon er ekki það
sem máli skiptir þegar hér er komið
sögu. Góðu fréttirnar eru hins veg-
ar að til eru margvíslegar lausnir á
vandamálunum sem við kljáumst
við dagsdaglega og margar þeirra
eru ekki flóknar. Breytingar á lífs-
venjum, regluleg hreyfing og svefn
geta gert kraftaverk í bland við aðr-
ar aðferðir en megin forsendan er
sú að fólk vilji og ætli sér að öðl-
ast betra líf. Ég held allavega að ef
maður hefur glatað hæfileikanum
til að hlakka til og gleðjast með öðr-
um þá sé maður ekki á góðri leið.
Vissulega verðum við fyrir áföllum
og erfiðleikum sem slá okkur út af
laginu tímabundið en ef ástandið
virðist komið til að vera þarf mað-
ur að endurskoða líf sitt og hugar-
far. Mér hefur alltaf fundist frekar
merkileg sú speki að það sýni best
úr hverju menn séu gerðir, á hvern
hátt þeir höndla þau áföll sem þeir
verða fyrir á lífsleiðinni, því það fær
enginn undanþágu frá þeim.
Orðið aðventa vísar til þess „sem
kemur“ og biðarinnar eftir komu
Krists. Það er því verðugt verkefni
að setja sér það markmið að njóta
eftirvæntingarinnar og hlakka til
þeirra stunda sem framundan eru.
Þar með talinn er erill og ys við
undirbúning jólahátíðarinnar og
þar erum við aftur komin að því að
„þegar hátíð fer í hönd undirbúa
menn hana, hver á sína vísu“, eins
og Fjalla Bensi í Aðventu. Allir geta
fundið sér hlutverk og tilgang, það
eru nefnilega allir góðir í einhverju
og undirbúningur hátíðarinnar
þarf ekki að vera bakstur á mörg-
um smákökusortum eða að verja
aðventunni hálfur inni í skápum
og skotum vopnaður fötu og tusku.
Það þarf heldur ekki að æða á alla
þá viðburði sem markaðsöflunum
hefur dottið í hug að setja forskeyt-
ið jóla- á, hvort sem það eru tón-
leikar, hlaðborð eða markaðir. Það
er svo gott að staldra við og njóta
allra litlu hlutanna í lífinu, sem
okkur hættir til að líta á sem sjálf-
sagða eins og t.d. sólarlagsins þeg-
ar maður keyrir fyrir Hafnarfjall,
kertaljósa og kakóbolla heima í eld-
húsi og brosa lítilla barnabarna.
Sunnan Skarðsheiðar hefur árið
sem senn líður í aldanna skaut ver-
ið gott og gjöfult, veðurguðirn-
ir hafa verið okkur hliðhollir þó
vissulega hafi þá sem landið yrkja
vantað hæfilega rigningu yfir sum-
artímann. Sömuleiðis hefur haust-
ið verið svo fágætlega gott að þegar
þetta er skrifað, í byrjun aðventu, er
varla hægt að segja að nokkur vet-
ur hafi látið sjá sig. Fyrir allt þetta
erum við þakklát og hlökkum til
nýrra hversdaga og ævintýra á því
ári sem senn gengur í garð og send-
um lesendum Skessuhorns allra
bestu jóla- og nýjárskveðjur héðan
úr Hvalfjarðarsveit.
Ingunn Stefánsdóttir
Kveðja úr Hvalfjarðarsveit:
Allir eru góðir í einhverju
Hvalfjörðurinn í vetrarbúningi.
Ingunn Stefánsdóttir.
Hugheilar óskir um gleðileg jól
og farsælt komandi ár
Þökkum samstarfið og
stuðninginn á árinu
Ásmundur Einar Daðason og
Halla Signý Kristjánsdóttir
þingmenn framsóknar í NV kjördæmi
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Stykkishólmsbær óskar
Vestlendingum öllum
gleðilegra jóla og farsældar
á komandi ári