Skessuhorn


Skessuhorn - 18.12.2019, Page 16

Skessuhorn - 18.12.2019, Page 16
16 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2019 Jól 2019 Gleðileg jól og heillaríkt komandi ár Starfsfólk Landmælinga Íslands Gleðileg jól og farsælt komandi ár Þökkum samskiptin á árinu sem er að líða, sérstaklega viðtökurnar við nýju nafni og ásýnd fyrirtækisins. Hlökkum til framhaldsins – skiljum ekkert eftir. Bæjarfulltrúar meirihluta Samfylk- ingar og Framsóknar og frjálsra í bæjarstjórn Akraness lögðu síðast- liðinn þriðjudag fram bókun þegar fjárhagsáætlun næsta árs var tekin til síðari umræðu og afgreiðslu. Þar segir að í fjárhagsáætlun Akranes- kaupstaðar fyrir árið 2020 sé gert ráð fyrir að rekstrarafkoma A-hluta bæjarsjóðs verði jákvæð um 309 milljónir króna og að rekstraraf- koma A- og B-hluta verði jákvæð samtals um 310 milljónir króna. „Á undanförnum árum hefur náðst góður árangur í rekstri bæjarins. Það sést vel á níu mánaða upp- gjöri ársins í ár, þar sem rekstrar- niðurstaða er jákvæð um rúmar 452 milljónir en áætlanir höfðu gert ráð fyrir 266 milljóna rekstrarafgangi. Þessi góða staða er til komin vegna ábyrgrar fjármálastjórnar og gefur okkur svigrúm til að ráðast í stór- sókn í uppbyggingu innviða til að Akranes verði áfram í fremstu röð sveitarfélaga á Íslandi í að bjóða upp á góða þjónustu fyrir íbúa á öllum aldri.“ Þá segir í bókuninni að í fjár- hagsáætlun næsta árs og þriggja ára áætlun 2021-2023 birtist skýr framtíðarsýn bæjarstjórnar. „Fim- leikahús við Vesturgötu verður tek- ið í notkun á næsta ári, uppbygg- ing þjónustumiðstöðvar við Dal- braut heldur áfram og bygginga- framkvæmdir hefjast við nýjan leik- skóla. Stóraukið fé er lagt í endur- bætur á stofnanalóðum við leik- og grunnskóla, haldið áfram með end- urbætur á innra rými Brekkubæj- arskóla og með tilkomu nýs leik- skóla fæst einnig viðbót við hús- næði Grundaskóla, en þessar fram- kvæmdir eru unnar með það að markmiði að bæta vinnuaðstæð- ur starfsmanna og nemenda. Einn- ig er á næsta ári gert ráð fyrir fjár- munum til að tryggja Fjöliðjunni gott húsnæði fyrir sína starfsemi til framtíðar og byggð verður reiðhöll á félagssvæði Dreyra. Áfram verður unnið að stórum skipulagsverkefnum, ráðist verð- ur í gatnagerð í Skógahverfi til að stuðla að áframhaldandi upp- byggingu, uppbygging hefst í Flóahverfi á næsta ári og þá mun- um við einnig hefja úthlutun lóða á Sementsreit. Uppbygg- ing íþróttamannvirkja við Jaðar- sbakka er sett á langtímaáætlun og hefst árið 2022.“ Loks segir í bókun þeirra Val- garðs L Jónssonar, Kristins Halls Sveinssonar, Guðjóns Viðars Guðjónssonar, Elsu Láru Arnara- dóttur og Ragnars Sæmundsson- ar: „Við gerð þessarar fjárhags- áætlunar er aðhalds gætt í rekstri og möguleikar nýttir til að draga úr álögum á íbúa og fyrirtæki. Farið er í einu og öllu að tilmæl- um um stuðning stjórnvalda við lífskjarasamninga, sem felur það í sér að gjaldskrár kaupstaðarins hækka ekki umfram 2,5% að með- altali.“ mm Meirihluti bæjarstjórnar fylgir fjárhagsáætlun úr hlaði

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.