Skessuhorn


Skessuhorn - 18.12.2019, Síða 18

Skessuhorn - 18.12.2019, Síða 18
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 201918 Afar erfitt ástand skapaðist víða um norðanvert landið í síðustu viku í kjölfar óveðursins sem gekk yfir landið á þriðjudag og miðvikudag. Hefur þetta áhlaup verið kallað Sprengilægðin og ekki að ósekju. Áhrif þess voru meðal annars víðtækt rafmagnsleysi, köld hús, skortur á vist- um, fjarskiptaleysi, ekki var hægt að mjólka kýr, hross og fé grófst í fönn og áfram mætti telja. Þá var ungs manns leitað í Eyjafirði eftir að krapaflóð hreif hann með sér við Núpá í Sölvadal á miðvikudagskvöldið. Leituðu hundruðir björgunarsveitarfólks og annarra við afar erfiðar að- stæður. Lík unga mannsins fannst svo eftir hádegi á föstudag. Í kjölfar slyssins og aðstæðna víða um allt norðanvert landið var búnaður og mannskapur sendur norður fyrir heiðar til aðstoðar heimafólki við leitar- og björgunarstörf. Herkúles birgðaflutningavél danska hersins fór m.a. norður á fimmtudag með mannskap og búnað. Þá sendu björgunarsveitir af Vesturlandi sömu- leiðis mannskap, en okkar landshluti fór hvað best út úr þessu hamfaraveðri sem geisaði á land- inu um miðja síðustu viku og töldu Vestlendingar ekki eftir sér að leggja brýnu máli lið. Björgunarfélag Akraness sendi björgunarsveitarmenn og snjóbíl til Hólmavíkur til aðstoðar við ýmis verkefni strax á miðvikudeginum. Aðfararnótt fimmtudags fór sjö manna hópur með fimm vélsleða og tvo jeppa í Eyjafjörð til að aðstoða við leit að piltinum sem þá var enn sakn- að við Núpá. Nokkrir félagar úr Björgunarsveitinni Brák í Borgarnesi fóru norður í Húnavatnssýslu og veittu félögum sínum þar liðsinni við að leysa úr fjölda verkefna sem þar biðu. Unnu þeir meðal annars að því að berja ísingu af háspennulínum til að koma rafmagni á bæi að nýju. Björguðu þeir auk þess ellefu hrossum sem grafist höfðu í fönn. „Allir vinna saman og marg- ar samhentar hendur ná að saxa á verkefnalistann,“ segir í færslu björgunarsveitarfólks á Fa- cebook. Þrír félagar úr Björgunarsveitinni Oki í Borgarfirði aðstoðuðu meðal annars við leitina í Sölvadal. Til að komast norður var ekið á Hvammstanga um Heydal og Laxárdalsheiði, en mannskapurinn þurfti að bíða meðan raflína var klippt í sundur því hún hékk yfir veginn. Komust þó á leiðarenda í vondu skyggni og tókust á við verkefni sem biðu. Vitjuðu meðal annars bænda sem höfðu verið án rafmagns í langan tíma. Af einum bænum var einstaklingur ferjaður yfir á annan bæ þar sem var rafmagn og hiti var á húsum. Hér hefur einungis verið nefnt brot af þeim verkefnum sem björgunarsveitafólk tók að sér í liðinni viku. mm/ Ljósmyndir eru frá Landsbjörgu, nema annað sé tekið fram. Björgunarsveitarfólk til leitar- og björgunarstarfa á Norðurlandi Við leit á bökkum Núpár í Sölvadal. Lík 16 ára pilts, Leifs Magnusar Grétarssonar Thislands fannst laust eftir hádegi á föstudag. Ljósm. Björgunarfélag Akraness. Hluti búnaðar björgunarsveita í Sölvadal. Ljósm. Björgunarfélag Akraness. vipmyndir af störfum björgunarsveitafólks síðustu vikuna. Ljósm. Landsbjörg.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.