Skessuhorn


Skessuhorn - 18.12.2019, Page 21

Skessuhorn - 18.12.2019, Page 21
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2019 21 Raðhús við Fjólulund í byggingu, aðeins ein íbúð eftir. Afhent fokheld á nýju ári. • Viðhaldsfrí klæðning á útveggjum, gluggum og útihurðum • Stór bílgeymsla • 2-3 svefnherbergi • 2 baðherbergi Söluaðilar og allar nánari upplýsingar hjá: Eignaborg fasteignasala - Rakel Árnadóttir - S. 416 0500 – www.eignaborg.is Fasteignasalan Hákot - S. 431 4045 – www.hakot.is Fasteignamiðlun Vesturlands - S. 431 4144 – www.fastvest.is Fjólulundur 9 - 11- 13 Akranesi Óskum viðskiptavinum okkar og öllum Akursnesingum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða. Starfsfólk Trésmiðjunnar Akurs ehf. Sú hugmynd kviknaði hjá fulltrúum í íþrótta- og æskulýðsnefnd Grund- arfjarðarbæjar í haust, að kom- ið yrði upp skautasvelli innanbæj- ar í vetur. Hugmyndinni var mjög vel tekið af bæjarstjórn og staðsetn- ing rædd á bæjarstjórnarfundi og í framhaldi af bæjarverkstjóra og bæjarstjóra. Að kvöldi fimmtudags- ins síðasta leit út fyrir að veðurspá- in væri ansi hentug fyrir slíka að- gerð og því ekki eftir neinu að bíða. Starfsmenn áhaldahúss og slökkvi- liðsins fóru á föstudaginn 13. des- ember, ruddu nálægt bílastæði og sprautuðu svo vel af vatni á planið með dælubíl slökkviliðsins. Morguninn eftir var svo þetta litla skautasvell opnað og komu ungir sem aldnir til að renna sér á skautum aftur á þessum slóðum en fyrir fjölmörgum árum, á síðustu öld, var tjörn þarna rétt hjá þar sem Grundfirðingar gátu skautað. Fólk kom nú með skauta úr geymsl- unni hjá sér og lánaði þeim sem vildu prófa. Þetta frábæra framtak heppnaðist mjög vel og vonandi verður áframhald á kalda blíðviðr- inu sem var þennan skemmtilega laugardag. tfk Grundarfjarðarbær lét útbúa skautasvell Séð yfir þetta litla skautasvell við Paimpol garðinn í Grundarfirði. Björg Ágústsdóttir skellti sér á skauta en hún heldur traustataki í stól sér til aðstoðar en var fljótt farinn að renna sér án hjálpartækja. Fólk kom með gamla skauta heiman frá sér til láns fyrir þá sem gátu nýtt sér það. Kirkjubraut 1, Akranes - listamadur@simnet.is www.listamadur.com - Sími 431 1964 / 857 2648 Gallerí Bjarni Þór í hjarta bæjarins - Opin vinnustofa og gallerí Teikningar, málverk, vatnslitamyndir, skopmyndir Karlakórinn Söngbræður heldur sína árlegu þjóðlegu veislu í Þinghamri,Varmalandi, laugardaginn 11. janúar 2020 kl. 20:00. Á matseðli verða: Svið frá Fjallalambi, heit og köld. Saltað hrossakjöt. Meðlæti: rófustappa og kartöflumús. Til skemmtunar verður söngur Söngbræðra. Hljómsveit kórsins leikur undir fjöldasöng. Miðaverð kr. 5.000 - posi á staðnum. Miðapantanir í síma 894 9535 eða 892 8882 fyrir kl. 22:00 fimmtudaginn 9. janúar 2020.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.